MOTIP

Kompakt grey metallic 12 ml

Vörunúmer 048 951071
Verð
2.269 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Grár metallic. MOTIP Kompakt Touch-Up blettalakk, 12 ml, með áföstum pensli. Blandað eftir 56 upprunalegum bílalitum frá 19 bílframleiðendum. MOTIP-vörunúmer 951071. Fyrir grjótkast og litlar rispur.

Fylgiskjöl2 skjöl

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmer048 951071 Strikamerki8711347921638 Flokkur Stikkorð, Vörumerki

Vörulýsing

MOTIP Kompakt Touch-Up. Grár metallic, 12 ml

Blettalakk í 12 ml túpu með áföstum pensli. Það er ætlað í grjótkast, litlar rispur og aðrar smáskemmdir þar sem engin ástæða er til að kaupa heilan brúsa af lakki. Lakkið þornar hratt, fyllir vel og heldur lit og gljáa.

Þessi túpa ber MOTIP-vörunúmerið 951071. Hún er blönduð eftir 56 upprunalegum bílalitum frá 19 bílframleiðendum. Finndu litakóðann á bílnum þínum í töflunni hér fyrir neðan. Passi hann við töfluna er þetta rétta túpan.

KOMPAKT CAR PAINT grey metallic 12 ml. Sýnishornið er til viðmiðunar. Skjár gefur ekki rétta mynd af lakki.

Bílalitir sem þessi túpa passar á

Bílaframleiðandi Litakóði Heiti litarins Árgerðir
CHRYSLER AA9 Charcaol Gray Met. 1990–1992
CHRYSLER BA5 Charcoal P. Gray Met. 2C 1985–1987
CITROEN ETH Gris Chateau Met. 2C 1994–2001
CITROEN ETHC Gris Chateau Met. 2C 1994–2001
FIAT 649 Grigio Quartz Met. 2C 1987–1994
FIAT 658 Grigio Chateau Met. 2C 1994–2001
FORD AMERICA 18 Smoke Met. 2C 1986–1987
FORD AMERICA 1F Smoke Met. 1986–1990
FORD EUROPE N Polaris Grey Met. 2C 1992–1994
FORD EUROPE N2 Polaris Grey Met. 2C 1992–1994
GENERAL MOTORS 14 Gunmetal Met. 2C 1993–1996
GENERAL MOTORS 15 Medium Gray Met. 1985–1993
HONDA NH-92M-3 Gothic Grey Met. 2C 1987–1988
HONDA NH537M Pewter Gray Met. 2C 1989–2003
KIA V7 Medium Grey Met. 2C 1998–2005
LANCIA-AUTOBIANCHI 658 Grigio Chateau Met. 2C 1994–2001
LANCIA-AUTOBIANCHI ETH Grigio Chateau Met. 2C 1994–2001
LEXUS UCA76 Medium Gray Met. 2C 1995–2002
LEXUS UCAC4 Gray Met. 2C 1999–2002
MAZDA 20D Gentry Silver Met. 2C 1998–2003
MITSUBISHI A14 Newport Gray P. 2C 1990–2002
MITSUBISHI AC10914 New Port Gray P. 2C 1990–2002
NISSAN KV1 Charcoal Mist P. 2C 1999–2004
PEUGEOT ETH Gris Chateau Met. 2C 1993–2006
PEUGEOT M0TH Gris Chateau Met. 2C 1993–2006
SUBARU/FUJI 795 Urban Gray Met. 2C 1986–1988
TATA 092 Stiletto Met. 2C 1996–2000
TOFAS 649 Quartz Gri Met. 2C 1987–1994
TOYOTA UCAC4 Gray Met. 2C 1999–2000
VOLKSWAGEN LV7D Anthrazit Satin Matt Met. 1991–2009

Taflan sýnir 30 af 56 litum. Litaleitin efst á flokkasíðunni Kompakt Touch-Up leitar í þeim öllum. Sláðu inn bílmerki og litakóða og hún segir þér hvaða túpa á við.

Hvernig finn ég litakóðann á bílnum mínum?

Litakóðinn er á bílnum sjálfum, á límmiða eða plötu frá framleiðandanum. Tveir bílar geta litið eins út en borið sinn hvorn kóðann, því framleiðendur skipta um lakk milli árgerða. Þess vegna dugar ekki að velja lit eftir útliti.

Algengustu staðirnir eru:

  • Á stafnum við ökumannshurðina, þar sem hurðin lokast.
  • Undir vélarhlífinni, oft á þverbita við vatnskassann.
  • Í farangursrýminu, undir gólfmottunni eða við varadekkið.
  • Í hanskahólfinu eða í þjónustubókinni.

Kóðinn er yfirleitt tveir til fjórir stafir, blanda af bókstöfum og tölum. Hann stendur gjarnan við orð á borð við Paint, Color, Farbe eða Lack. Finnirðu hann ekki getur þú leitað eftir bílmerki og árgerð í litaleitinni.

Undirvinna

Undirvinnan ræður því hvernig blettunin kemur út.

  1. Þvoðu svæðið og náðu allri fitu, tjöru og vaxi af. Lakk festist ekki á óhreinu yfirborði.
  2. Hreinsaðu lausar lakkflögur og ryð úr sárinu. Ryð sem verður eftir undir lakkinu heldur áfram að vinna.
  3. Slípaðu brúnirnar á sárinu mjúkar svo blettunin myndi ekki kant.
  4. Grunnaðu beran málm. Grunnurinn er það sem lakkið loðir við.
  5. Þurrkaðu rykið af með örtrefjaklút rétt áður en þú lakkar.

Notkunarleiðbeiningar

  1. Fjarlægðu laust lakk og ryð úr sárinu og hreinsaðu það vel.
  2. Yfirborðið á að vera hreint, þurrt og fitulaust.
  3. Túpan á að vera við stofuhita. Besta vinnsluhitastigið er 10–25 °C.
  4. Hristu túpuna í tvær mínútur fyrir notkun og prófaðu litinn á földum stað.
  5. Berðu lakkið á í nokkrum þunnum lögum fremur en einu þykku.
  6. Bestur árangur næst með því að leggja glæru yfir að lokum.
  7. Þurrktíminn ræðst af hita, rakastigi og þykkt lakksins.

Lestu alltaf leiðbeiningarnar á umbúðunum áður en þú byrjar og farðu eftir þeim.

Litbrigði undir sama kóða

Sumir litakóðar eiga sér fleiri en eitt litbrigði. Bílframleiðendur kaupa lakk frá mismunandi birgjum milli framleiðslulota, svo sami kóði getur verið örlítið mismunandi á litinn. Munurinn er lítill en getur sést. Prófaðu alltaf á földum stað fyrst, eða komdu við hjá okkur og berðu túpuna saman við litakortið.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 0,03 kg
Framleiðandi

Magn

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 530 5900 eða sendu okkur póst á [email protected].

Vörur sem gætu líka hentað …

Meira frá
MOTIP
Skoða allt →