Bosch L5 075 er 12 V neyslugeymir með 140 Ah rýmd fyrir notkun þar sem þarf mikla og stöðuga orku. Hann hentar vel í stærri húsbíla, hjólhýsi, báta, sumarhús og sérhæfðan búnað.
Geymirinn er Deep Cycle gerð og hannaður fyrir reglubundna hleðslu og afhleðslu. Hann er fyrst og fremst neyslugeymir, en getur hentað sem startgeymir fyrir minni tæki ef forskrift framleiðanda leyfir það.
Tæknilegar upplýsingar
- Spenna: 12 V
- Rýmd: 140 Ah
- Kaldræsiþol: 800 A
- Plúspóll: vinstra megin
Stærðir
- Lengd: 513 mm
- Breidd: 189 mm
- Hæð með pólum: 223 mm
Vegna stærðar og afkastagetu er mikilvægt að mæla rafgeymarýmið og ganga úr skugga um að pólstaða passi.



