Insect-O-Cutor

Flugnabani NOMAD UV LED USB hleðsla

Vörunúmer nomad-ukeu
Verð
13.625 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Hlaðanlegur flugnabani fyrir pallinn, útileguna og bústaðinn. USB-hleðsla, allt að 18 klukkustundir á hleðslu og samanbrjótanlegt ljós með þremur birtustigum, mest 200 lúmen. Vinnur vel á lúsmý og rykmý.

Fylgiskjöl2 skjöl

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmernomad-ukeu Strikamerki5060525034367 Flokkur Stikkorð, Vörumerki

Vörulýsing

Nomad frá Insect-O-Cutor er ferðaflugnabani með rafhlöðu. Hann sameinar UV-ljós og sýnilegt grænt ljós, sem laðar að sér fleiri tegundir af fljúgandi og bítandi skordýrum en UV-ljós eitt og sér. Skordýrin fara á rafmagnsgrind.

Notkun og helstu eiginleikar

Tækið er gert fyrir útiveru: pallinn, garðpartíið, útileguna og sumarbústaðinn. Það stendur á hvaða láréttu yfirborði sem er og það má líka hengja upp á króknum að ofan, til dæmis inni í tjaldi eða undir sólhlíf.

Nomad vinnur vel á litlu flugurnar sem skipta mestu hér á landi, lúsmý og rykmý. Hleðslan dugar í allt að 18 klukkustundir og full hleðsla tekur um þrjár klukkustundir um USB. Þú mátt nota tækið meðan það hleðst, en þá lengist hleðslutíminn.

Innbyggða lampann má nota eins og ferðaljós, með þremur birtustigum: 40, 100 og 200 lúmen. Ljósið fellur saman þegar pakkað er niður. Athugaðu að UV-ljósið er ósýnilegt mannsauganu, svo UV-díóðurnar virðast daufar við hliðina á þeim grænu. Flugnabanahlutinn virkar aðeins þegar tækið er alveg opið.

Tæknilegar upplýsingar

Vörunúmer NOMAD-UKEU
Gerð Nomad, hlaðanlegur flugnabani með rafmagnsgrind
Framleiðandi Insect-O-Cutor (Pelsis)
Föngun UV-LED og grænt LED-ljós, háspennugrind
Mál, hæð × breidd × dýpt 122 × 100 × 100 mm
Hleðsla USB, að lágmarki 5 V / 1,1 A
Hleðslutími Um þrjár klukkustundir
Ending á hleðslu Allt að 18 klukkustundir
Birtustig lampans 40, 100 og 200 lúmen
Festing Stendur á láréttu yfirborði eða hangir á samanbrjótanlegum krók
Ábyrgð Tvö ár
Innihald Tæki, USB-hleðslusnúra, hreinsibursti, leiðbeiningar

Notkun og viðhald

  1. Hlaðið tækið að fullu fyrir fyrstu notkun. Vísirinn efst lýsir rauðu á meðan hleðslu stendur og grænu þegar henni er lokið.
  2. Opnaðu tækið alveg. Flugnabanahlutinn virkar aðeins í opinni stöðu.
  3. Ýttu á flugnabanahnappinn til að kveikja. Lampahnappurinn gengur í gegnum þrjú birtustig og slokknar í fjórða smelli.
  4. Settu tækið þangað sem flugurnar safnast og helst ekki á milli þín og þess svæðis sem þú vilt verja.
  5. Hreinsaðu tækið eftir notkun. Slökktu á því fyrst, burstaðu skordýrin varlega af grindinni með burstanum sem fylgir og þurrkaðu yfirborðið með rökum klút.
  6. Ljóshlífina má taka af til þrifa: snúðu henni rangsælis, lyftu henni örlítið og snúðu aftur rangsælis.

Háspenna. Ekki beina garðslöngu eða vatnsúða að tækinu og ekki opna grindina með fingrunum. Geymdu tækið þurrt á milli nota.

Rafhlaðan er innbyggð og ekki skiptanleg af notanda. Fullhlaðið tæki geymist betur en tómt, svo hlaðið það fyrir vetrargeymslu.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 1,00 kg
Framleiðandi

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 530 5900 eða sendu okkur póst á [email protected].

Vörur sem gætu líka hentað …

Meira frá
Insect-O-Cutor
Skoða allt →