Sealey

Ennisljós 3W LED COB / 1W LED SMD

Vörunúmer 066 ht300r
Verð
8.658 kr.
Ert þú í reikningsviðskiptum?Skrá inn →

Sealey HT300R. Endurhlaðanlegt ennisljós með COB- og SMD-ljósgjöfum, hreyfiskynjara og segulfestingu sem gerir það að vinnuljósi.

Fylgiskjöl3 skjöl

StaðaÁ lager
Lagerstaða
Upplýsingar
Vörunúmer066 ht300r Strikamerki5054630163128 Flokkur Stikkorð, , Vörumerki

Vörulýsing

Sealey HT300R – endurhlaðanlegt LED-ennisljós

Sealey HT300R er tvennt í einu. Á höfuðbandinu er það ennisljós með COB-rönd fyrir breiða lýsingu, og tekið af bandinu er það lítið vinnuljós sem festist með segli á stál. Þrjár SMD-díóður gefa 300 lúmen þegar þarf að lýsa lengra.

Notkun og eiginleikar

Handahreyfiskynjari kveikir og slekkur þegar hendi er strokið framhjá ljósinu. Hleðslu- og rafhlöðuvísir sýnir orkustöðuna svo ljósið klárist ekki óvænt í miðju verki.

COB-ljósið gefur 150 lúmen og endist í fjórar klukkustundir. SMD-ljósið gefur 300 lúmen og endist í tvær. Segullinn heldur ljósinu á vélarhlíf, lyftu eða verkfæraskáp þegar betra er að hafa ljósið kyrrt en á höfðinu.

Tæknilegar upplýsingar

Atriði Upplýsingar
Framleiðandi Sealey
Númer framleiðanda HT300R
Gerð ljósgjafa 3 W COB og 1 W SMD
Ljósstreymi COB 150 lm, SMD 300 lm
Rafhlaða 3,7 V 1000 mAh litíumpólýmer
Hleðslutími 3–4 klst.
Uppgefinn notkunartími 4 klst. á COB, 2 klst. á SMD
Festing Höfuðband eða segulfesting
Stýring Handahreyfiskynjari
Hleðslutengi USB; 0,5 m snúra fylgir
Nettóþyngd 95 g

Leiðbeiningar um notkun

  1. Hlaððu ljósið að fullu fyrir fyrstu notkun með USB-snúrunni sem fylgir.
  2. Stilltu höfuðbandið og beindu ljósinu að vinnusvæðinu en ekki í augu þeirra sem standa nærri.
  3. Taktu ljósið af bandinu og notaðu segulinn þegar betra er að lýsa úr fastri stöðu.
  4. Fylgstu með rafhlöðuvísinum og hlaððu strax eftir notkun.

Viðbótar upplýsingar

Þyngd 0,14 kg
Framleiðandi

Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.

Nafn(Skyldureitur)

Eða hringdu í 530 5900 eða sendu okkur póst á [email protected].

Vörur sem gætu líka hentað …

Meira frá
Sealey
Skoða allt →
Spindilkúlukló með glussatjakk fyrir atvinnubíla í opinni rauðri tösku – Sealey VS3814
Spindilkúlukló með tjakk

Spindilkúlukló frá Sealey fyrir vörubíla og atvinnubíla. Þrír kjálkar sem skipta má um, 12 tonna glussatjakkur eða handvirk…

Vnr: 066 vs3814
VæntanlegSjá nánar
Tíu spegilslípaðir krákufætur 10–19 mm á geymslubraut – Sealey AK5989
Krákufótur opin 3/8" 10 stk

Tíu opnir, beinir krákufætur úr Premier-línu Sealey með 3/8" drifi, 10–19 mm, á geymslubraut. Spegilslípað krómmólýbdenstál sem nær…

Vnr: 066 ak5989
VæntanlegSjá nánar