Leguhús SNH 516/613
Tvískipt leguhús SNH516/613, legusæti 140 mm – fyrir 80 mm boru eða 70 mm öxul á spennuhólk. Lega fylgir ekki.
Vörulýsing
Leguhús SNH516/613 – legusæti 140 mm.
- Gerð: tvískipt leguhús (plummer block) úr steypujárni
- Innihald: hús með þéttingum – lega fylgir ekki
- Legusæti (utanmál legu): 140 mm
- Fyrir legu með beinni boru: 80 mm
- Fyrir legu á spennuhólk: 70 mm öxull (H316)
Tvískipt leguhús: botninn og lokið eru aðskildir hlutir sem boltast saman, þannig að hægt er að skipta um legu án þess að taka öxulinn úr. Húsið er ætlað fyrir sjálfstillandi legur – veltikúlulegur og veltikeflalegur – og er með þéttingum á báðum endum.
Legan er annaðhvort með beinni boru (80 mm) og sest beint á öxulinn, eða með kónískri boru og er fest með H316 spennuhólk á 70 mm öxul.
Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.
Eða hringdu í 530 5900 eða sendu okkur póst á [email protected].


