Command upphengi fyrir kúst max 1,8 kg
Command kústahelda fyrir kúst eða moppu, allt að 1,8 kg. Festist án borunar og hentar við þurrar aðstæður innandyra.
Vörulýsing
Command kústahelda
Command kústahelda heldur um skaft kústs eða moppu og hjálpar til við að losa gólfpláss í þvottahúsi, geymslu eða ræstiskáp. Gripið opnast þegar skaftinu er þrýst inn og heldur því við vegginn.
Helstu upplýsingar
- Burðarþol: Allt að 1,8 kg
- Litur: Hvítur með gráu gripi
- Notkun: Innandyra, við þurrar aðstæður
- Innihald: 1 kústahelda og 2 festistrimlar
- Vörunúmer: 17007
Uppsetning og notkun
Notaðu aðeins á hentuga slétta og trausta fleti. Ekki festa á veggfóður, ómeðhöndlaðan við eða viðkvæmt og veikt yfirborð. Rétt undirlag og uppsetning ráða því hvort festingin heldur og losnar án skemmda.
Hreinsaðu undirlagið samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu og láttu það þorna áður en fest er upp. Þrýstu festingunni vel að og bíddu í eina klukkustund áður en álag er sett á. Við fjarlægingu er strimillinn teygður hægt niður meðfram fletinum, ekki togaður út frá veggnum. Endurnota má krókinn með nýjum, samhæfum Command strimli.
Viðbótar upplýsingar
| Þyngd | 0,05 kg |
|---|---|
| Framleiðandi |
Vantar þig frekari upplýsingar um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér eins fljótt og við getum. Vöruheitið og vörunúmerið fylgja sjálfkrafa með.
Eða hringdu í 530 5900 eða sendu okkur póst á [email protected].
Meira frá3M CommandSkoða allt →

Svartir Command Medium myndafestistrimlar, 6 pör (12 strimlar). Fjögur pör bera allt að 5 kg. Fyrir hentuga slétta…

Tvöfaldur baðkrókur í nikkeláferð fyrir allt að 1,8 kg. Vatnsþolnir Command festistrimlar fylgja; festist á slétta fleti án…

Stór Command málmkrókur í nikkeláferð fyrir allt að 2,2 kg. Einn krókur og tveir stórir festistrimlar í pakka.

Hvítir Command myndafestistrimlar í stærðum L og XL. 4 pör L og 8 pör XL; alls 24 strimlar.…

Hvítir Command Medium myndafestistrimlar, 4 pör (8 strimlar). Fjögur pör bera allt að 5 kg. Fyrir hentuga slétta…

Hvítir Command Medium myndafestistrimlar, 12 pör (24 strimlar). Fjögur pör bera allt að 5 kg. Fyrir hentuga slétta…

Command glærir miðlungs krókar, allt að 900 g á krók. 2 krókar og 4 festistrimlar í pakka. Fyrir…

Hvítir Command X-Large myndafestistrimlar, 4 pör (8 strimlar). Fjögur pör bera allt að 9 kg. Fyrir hentuga slétta…












