Evapo-Rust® · CRC Industries

Evapo-Rust — ryðið fer, málmurinn verður eftir

Evapo-Rust er vatnsbasað ryðbað sem leysir ryð af málmi án þess að skrúbba, bursta eða slípa. Það er engin sýra: efnið grípur járnið úr ryðinu og lætur heila stálið í friði, svo það getur ekki étið sig of langt. Þú leggur hlutinn í, skolar hann og notar sama vökvann aftur.

Evapo-Rust ryðeyðandi hreinsiefni í 5 lítra brúsa og 20 lítra fötu
pH 5,9Engin sýra, engin leysiefni, vatnsbasað
30 mín – nóttHálftími á létt ryð, nótt á þungt
60 gþurrt ryð á hvern lítra af vökva
EndurnýtanlegtSigtað og notað aftur, hring eftir hring

Hvernig það virkar

Efnið þekkir ryð, ekki málm

Munurinn á Evapo-Rust og sýru er ekki styrkur heldur það hvað efnið þekkir. Sýra ræðst á allt sem hún nær í. Evapo-Rust þekkir aðeins járnið í járnoxíði og nær því hvorki úr stálinu, álinu né koparnum við hliðina.

Þess vegna er óhætt að setja samsettan hlut í baðið í heilu lagi, og þess vegna hættir efnið af sjálfu sér þegar ryðið er búið í stað þess að halda áfram.

Það grípur bara járnið úr ryðinu

Virka efnið myndar stóra sameind sem lokast utan um járnið eins og kló og heldur því uppleystu í vatninu — efnafræðingar kalla þetta klóbindingu (e. chelation). Gripurinn nær járninu úr ryði, sem er járnoxíð, en er of veikburða til að ná því úr stálinu sjálfu, þar sem það situr miklu fastar.

Þess vegna stoppar það af sjálfu sér

Sýra veit ekki hvar ryðið endar og málmurinn byrjar; hún heldur áfram að éta þangað til henni er skolað burt. Evapo-Rust klárar ryðið og hefur svo ekkert fleira að gera. Þú getur ekki gleymt hlut í baðinu yfir helgi og eyðilagt hann.

Járnið helst uppleyst í vatninu

Annað efni í blöndunni tekur við járninu og heldur því uppleystu, svo það sest ekki aftur á hlutinn. Við það losnar gripurinn og getur sótt meira járn — það er ástæðan fyrir því að sami vökvinn vinnur hring eftir hring.

Og þess vegna er baðið endurnýtanlegt

Vökvinn gefst upp þegar hann er orðinn mettaður af járni, ekki eftir ákveðinn tíma. Um einn lítri ræður við allt að 60 grömm af þurru ryði — 5 lítra brúsi við um 300 grömm, 20 lítra fata við rúmlega 1,2 kíló.

Fyrir og eftir

Sex hlutir úr baðinu

Myndirnar eru framleiðandans og sýna hluti sem ekkert var gert við annað en að leggja þá í Evapo-Rust og skola þá. Takið eftir smáatriðunum sem lifa af — stimpluðu letri, skrúfgangi, plastslíðri. Það er munurinn á því að leysa ryðið og því að slípa það af.

Pottjárnspanna og -pottur fyrir hreinsun með Evapo-RustFyrir
Pottjárnspanna og -pottur eftir hreinsun með Evapo-RustEftir
Pottjárnspanna og -potturEldhúsáhöld úr pottjárni eru klassíska verkið. Ryðið fer af, svarta pottjárnið sjálft verður eftir — og svo þarf að brenna feiti í pönnuna upp á nýtt.
Rörtöng fyrir hreinsun með Evapo-RustFyrir
Rörtöng eftir hreinsun með Evapo-RustEftir
RörtöngGamalt handverkfæri sem búið var að afskrifa. Skrúfgangurinn og stimplaða letrið koma óskemmd undan ryðinu, því efnið snertir ekki heila stálið.
Axarhaus fyrir hreinsun með Evapo-RustFyrir
Axarhaus eftir hreinsun með Evapo-RustEftir
AxarhausStimplað merki framleiðandans — „MWHCo HAND MADE“ — sést ekki fyrr en ryðið er farið. Slípirokkur hefði tekið letrið með.
Sleggjuhaus fyrir hreinsun með Evapo-RustFyrir
Sleggjuhaus eftir hreinsun með Evapo-RustEftir
SleggjuhausÞungt, jafndreift ryð á smíðuðum haus. Hér sést vel hvernig yfirborðið verður grátt og matt frekar en gljáandi: ryðið er farið, en gömlu holurnar eftir það eru enn þar.
Hnífur og slíður fyrir hreinsun með Evapo-RustFyrir
Hnífur og slíður eftir hreinsun með Evapo-RustEftir
Hnífur og slíðurPlastslíðrið og hnífurinn fóru saman í baðið. Efnið vinnur ekki á plasti, gúmmíi eða sílikoni, svo slíðrið kemur óbreytt upp úr.
Stálhlutar og hólkar fyrir hreinsun með Evapo-RustFyrir
Stálhlutar og hólkar eftir hreinsun með Evapo-RustEftir
Stálhlutar og hólkarVélarhlutar í lotu — það sem baðið hentar best í. Þú leggur alla lotuna í einu og sama vökvann og notar hann svo aftur í næstu.

Notkun

Fimm skref

Efnið er tilbúið til notkunar og er aldrei þynnt. Það eina sem skiptir raunverulegu máli umfram það að leggja hlutinn í er skref fjögur.

  1. Hreinsaðu grófasta skítinn af. Efnið kemst í gegnum olíu og óhreinindi, en það tefur verkið og styttir líftíma baðsins. Þykka feiti og vaxvörn á að ná af fyrst.
  2. Helltu óblönduðu Evapo-Rust í ílát. Efnið er tilbúið til notkunar — það er aldrei þynnt. Þú þarft nóg til að fljóta yfir hlutinn alveg.
  3. Láttu liggja. Hálftími á létt ryð, nótt á þungt. Hlutinn má ekki standa upp úr: það sem er ofan vatnsborðs hreinsast ekki.
  4. Skolaðu með vatni. Þetta skref er það mikilvægasta og það sem oftast er sleppt. Járnagnir sitja eftir í filmunni á hlutnum og setja hann af stað aftur ef þær eru ekki skolaðar af. Er ryð eftir í holum? Skolaðu og leggðu aftur í.
  5. Þurrkaðu — og verðu hlutinn. Hreinn, ber málmur byrjar að ryðga strax. Loftþurrkun dugar í svona tvo daga. Rust-Block yfir þurran flöt ver hann í allt að ár innandyra.

Kemst hluturinn ekki í bað? Leggðu þykkan pappírsþurrkubunka, gegnvotan af efni, yfir ryðblettinn, láttu hann fylgja löguninni og vefðu plastfilmu yfir svo hann þorni ekki. Taktu af eftir hæfilegan tíma og skolaðu.

Efni og fletir

Hvað má fara í baðið

Óhult

  • Stál, pottjárn og járn — heila málminn snertir efnið ekki
  • Króm og lóðaða fleti
  • Messing, kopar, ál, gull, blý og títaníum — hvorki hreinsast né skemmast
  • Plast, PVC, vínil, gúmmí, sílikon og Viton
  • Gler, kork, timbur og fatnaður
  • Flest lökk og málning, og duftlökkun — svo lengi sem liturinn byggir ekki á járnoxíði

Gætið að þessu

  • Magnesíum og magnesíumblendi. Framleiðandinn ráðleggur frá því afdráttarlaust. Þetta er eina bannið á listanum.
  • Bláanir og aðrar oxíðhúðanir fara af á svona hálftíma. Það er ekki galli heldur eðli málsins — bláun er oxíðlag — en komdu ekki með bláaðan byssuhlaup í baðið og bústu við að bláunin lifi.
  • Ryðblettir í fatnaði, á flísum eða í postulíni. Baðið vinnur á ryði á málmi, ekki á litnum sem ryðið skildi eftir annars staðar.
  • Málning með járnoxíðlitarefni. Sjaldgæft, en ef liturinn sjálfur er járnoxíð þá er hann eitthvað sem efnið þekkir.

Fróðleikur

Fjórar leiðir að ryði

Ryð er járnoxíð: járn sem hefur náð í súrefni og raka. Það er fyrirferðarmeira en járnið sem það kom úr, svo það flagnar af og afhjúpar nýtt járn undir — ólíkt áloxíði, sem lokar sér og ver málminn. Þess vegna stoppar ryð ekki af sjálfu sér.

Á Íslandi gerist þetta hraðar en víðast hvar: selta í lofti nánast alls staðar, raki nær allt árið og salt á götunum frá hausti fram á vor. Klóríðjónir brjóta niður þær varnir sem málmurinn hefur og flýta rafefnaferlinu sem ryðgunin er.

AðferðEðliHvað ferÍ reynd
Slípun og sandblásturVélræntAllt — ryð, málning og dálítið af málminumFljótlegt á sléttum fleti; ekkert kemst í skrúfgang, letur eða holur, og það sem fer af kemur ekki aftur.
Sýra (fosfór-, sítrónu-, saltsýra)Efnafræðilegt, hittir alltRyð og svo málminnVirkar hratt og heldur áfram. Þarf hlutleysingu og vöktun, getur valdið vetnisstökkun í hertu stáli og ræðst á sink, ál og kopar.
RyðbreytirEfnafræðilegt, umbreytandiEkkert — ryðinu er breytt, ekki eyttTannín eða fosfórsýra breyta ryði í stöðugt, dökkt lag sem er málað yfir. Rétta svarið á bílbody; rangt svar ef hluturinn á að verða ber málmur aftur.
Ryðbað (Evapo-Rust)Efnafræðilegt, hittir bara ryðiðAðeins járnoxíðiðHægara en sýra og krefst baðs. Í staðinn stoppar það af sjálfu sér, skemmir ekki nágrennið og vökvinn er endurnýttur.
Fjórar aðferðir við ryð og hvað hver þeirra gerir í raun.

Ryðeyðir eða ryðbreytir? Ryðeyðir fjarlægir ryðið og skilar berum málmi — það er Evapo-Rust. Ryðbreytir fjarlægir ekkert heldur breytir ryðinu í stöðugt lag sem málað er yfir. Á bílbody sem á að fara í lökkun er breytirinn oftast réttur; á verkfæri, vélarhluti og pottjárn sem eiga að verða ber málmur aftur er það eyðirinn.

Allir ryðeyðar og ryðbreytar →

Myndbönd

Efnið í notkun

Myndböndin eru frá framleiðandanum og notendum hans og eru á ensku. Þetta fyrsta er eftirminnilegasta prófið sem til er á efninu: Edd China leggur heila grind undan Range Rover í 1.935 lítra af Evapo-Rust.

Edd China leggur grind undan Range Rover frá 1986 í 1.935 lítra af Evapo-Rust

Aðferðin

Þrjú myndbönd um grunnnotkunina — hvernig baðið er sett upp, hversu lengi á að láta liggja og hvað gerist eftir á.

Hvernig Evapo-Rust er notað, skref fyrir skref
Evapo-Rust Heavy-Duty Rust Remover — yfirlit framleiðanda
ABOM79: að hreinsa og verja ryðguð verkfæri

Verkin, hvert fyrir sig

Níu verk sem fólk notar efnið í, frá bensíntanki að pottjárnspönnu — og eitt þar sem það er borið saman við edik.

Bensíntankur hreinsaður að innan
Antíkmunir og gamlir hlutir
Króm
Rafmagnshlutir og samsetningar
Pottjárnspanna hreinsuð á nokkrum mínútum
Pottjárn endurheimt frá grunni
Evapo-Rust borið saman við edik
Evapo-Rust í úthljóðsbaði (ultrasonic)
Mark Smith Racing notar Evapo-Rust á kappakstursbíl

Vörnin á eftir

Rust-Block — og hvað „allt að ár“ þýðir

Hreinn, ber málmur byrjar að ryðga um leið og hann er þurr. Loftþurrkun ein og sér heldur hlutnum ryðlausum í svona tvo daga. Rust-Block er vatnsbasuð, olíulaus húð sem úðað er yfir þurran flöt og ver hann í allt að eitt ár.

Með einu skilyrði, sem vörulýsingin segir ekki: framleiðandinn ætlar efnið til notkunar innandyra. Vatn veikir húðina eða skolar henni af, svo hlutur sem stendur úti eða í óupphituðum, rökum skúr fær ekki árið. Fyrir útivist og undirvagn eru ryðolíur og vaxvarnir rétta efnið.

  • 470 ml úðabrúsi með sprautuhaus — ekki þrýstibrúsi
  • pH 8,0–8,5, óeldfimt, lyktarlítið, olíulaust
  • Ekki flokkað sem hættulegt skv. CLP í öryggisblaði okkar
  • Virkar á járnmálma jafnt sem kopar og messing
  • Skolast af með volgu vatni áður en lakkað eða húðað er
Evapo-Rust Rust-Block ryð- og tæringarvörn, 470 ml úðabrúsi
Rust-Block — grunnnotkun
Rust-Block á sundurtekna hluti í geymslu

Öll ryðvarnarefni →

Vörurnar

Evapo-Rust hjá okkur

Ryðbaðið fæst í 5 lítra brúsa og 20 lítra fötu, og Rust-Block í 470 ml úðabrúsa. Baðið er tilbúið til notkunar — 5 lítrar eru 5 lítrar af vinnandi vökva, ekki þykkni sem á eftir að þynna.

Hitt í línunni frá framleiðandanum

CRC gerir tvær vörur til viðbótar undir Evapo-Rust merkinu sem við eigum ekki á lager eins og er. Við getum pantað þær — hringdu eða sendu okkur línu ef þig vantar þær. Stærðirnar hér að neðan eru þær bandarísku sem framleiðandinn gefur upp — ryðbaðið og Rust-Block seljum við í evrópskum pökkum, 5 og 20 lítrum og 470 ml.

  • Evapo-Rust Gel (8 oz) — sami hreinsikraftur í hlaupi sem loðir við lóðrétta fleti og hluti sem eru of stórir til að leggja í bað. Borið á þykkt, látið vinna í eina til tvær klukkustundir og skolað. Gelið er líka það eina í línunni sem vinnur á ryðblettum.
  • Thermocure (32 oz) — ryðhreinsun á kælikerfi: fjarlægir ryðhrúður og útfellingar úr vatnskassa, vatnsdælu, kælirásum, blokk og heddi. Ekki notað í frosti og ver ekki gegn frosti.

Síminn: 530 5900

Öryggi

Evapo-Rust er vatnsbasað, óeldfimt, inniheldur enga sýru og engin leysiefni, og pH-gildið er 5,9. Það er samt ekki hættulaust efni: öryggisblaðið flokkar það skv. CLP sem húðertandi (H315) og alvarlega augnertandi (H319) með viðvörunarorðinu VARÚÐ.

  • Notaðu hlífðarhanska og augnhlífar, og þvoðu hendur eftir meðhöndlun.
  • Berist efnið í augu: skolaðu varlega með vatni í nokkrar mínútur, fjarlægðu snertilinsur ef auðvelt er og skolaðu áfram. Leitaðu læknis ef ertingin er viðvarandi.
  • Berist það á húð: farðu úr fötum sem óhreinkast og skolaðu húðina.
  • Geymist þar sem börn ná ekki til, aðskilið frá ósamrýmanlegum efnum.
  • Fargaðu notuðum vökva hjá viðurkenndri spilliefnamóttöku.

Rust-Block (RB015, 470 ml) er aftur á móti ekki flokkað sem hættulegt skv. CLP; eina varnaðarsetningin er að geyma það þar sem börn ná ekki til.

Algengar spurningar

Hvað tekur þetta langan tíma?

Hálftími á létt ryð og allt upp í nótt á þungt. Það fer eftir því hversu þykkt ryðið er, ekki hversu stór hluturinn er — lítill bolti með þykku ryði tekur lengri tíma en stór plata með þunnu.

Kalt umhverfi hægir á efninu. Baðið vinnur best við stofuhita, svo bílskúr í frosti er ekki rétti staðurinn fyrir það.

Má leggja ál, kopar eða messing í baðið?

Já, en það gerir ekkert fyrir þá. Efnið hvorki hreinsar þessa málma né skemmir þá — það þekkir bara járnoxíð. Samsettur hlutur úr stáli og messing fer því í heilu lagi í baðið.

Eina undantekningin er magnesíum og magnesíumblendi. Þau á ekki að setja í baðið.

Hvað með plast, gúmmí og málningu?

Plast, PVC, vínil, gúmmí, sílikon, Viton, gler, timbur og fatnaður eru öll óhult. Það þýðir að þú getur sett samsetta hluti í baðið án þess að taka þá í sundur fyrst.

Málning og duftlökkun lifa þetta af nema liturinn byggi á járnoxíði. Bláun og aðrar oxíðhúðanir fara hins vegar af á um hálftíma — anóðering ekki.

Hluturinn kom svartur upp úr baðinu. Hvað gerðist?

Þetta er kolefni úr stálinu sjálfu, ekki leifar af efninu. Stál er járn og kolefni; þegar járnoxíðið er tekið burt hækkar hlutfall kolefnis á ysta laginu og flöturinn dökknar. Efnafræðingar kalla þetta kolefnisflutning.

Það skaðar ekki málminn. Oftast fer það af með þurrum klút eða léttri pússningu. Vilji maður forðast það: taktu hlutinn upp um leið og ryðið er farið, skolaðu strax, og í næsta sinn má nota þynnri blöndu sem vinnur hægar. Hálegeringar stál dökknar yfirleitt ekki.

Hvað má nota sama vökvann oft?

Þangað til hann hættir að virka. Það er mettun sem ræður, ekki tími: einn lítri ræður við um 60 grömm af þurru ryði. Geymsluþol óopnaðs efnis er ótilgreint — það eldist ekki í brúsanum.

Sigtaðu vökvann á milli umferða og settu hann aftur á brúsa. Botnfallið er það sem áður var ryð.

Hvernig veit ég að baðið er búið?

Það verður alveg svart og hættir einfaldlega að vinna. Hlutlægari mælikvarði ef þú átt flotvog: ferskt efni hefur eðlismassa 1,04, og þegar hann er kominn í 1,08 er vökvinn uppurinn.

Má úða efninu á í staðinn fyrir að leggja hlutinn í bað?

Á þunnt ryð á sléttum fleti, já — úðaðu eða strjúktu ríflega á og haltu flötinum blautum. Á þykkt ryð, nei: vatnið gufar upp löngu áður en efnið er búið, og þá gerist lítið.

Fyrir það sem ekki kemst í bað er gamla bragðið að leggja þykkan pappírsþurrkubunka gegnvotan af efni yfir svæðið, láta hann fylgja löguninni og vefja plastfilmu yfir svo hann haldist rakur. Framleiðandinn gerir líka gel sem loðir við lóðrétta fleti — við eigum það ekki á lager en getum pantað það.

Nær það ryðblettum úr fötum eða af flísum?

Nei. Baðið vinnur á ryði á málmi. Ryðblettur í taui eða á flísum er litur sem ryðið skildi eftir sig og hann þarf annað efni.

Er efnið hættulaust?

Það er vatnsbasað, óeldfimt, inniheldur enga sýru og engin leysiefni, og pH-gildið er 5,9 — nánast hlutlaust. En hættulaust er það ekki: öryggisblaðið okkar flokkar það sem húðertandi (H315) og alvarlega augnertandi (H319) með viðvörunarorðinu VARÚÐ.

Notaðu hanska og augnhlífar, þvoðu hendur eftir meðhöndlun og geymdu efnið þar sem börn ná ekki til. Berist það í augu: skolaðu varlega með vatni í nokkrar mínútur og leitaðu læknis ef ertingin er viðvarandi.

Hvað geri ég við notaða vökvann?

Fargaðu honum hjá viðurkenndri spilliefnamóttöku eins og öryggisblaðið segir (P501). Hann er að mestu vatn, en hann er líka uppleyst járn úr öllu sem í hann fór.

Hvað ver Rust-Block lengi?

Allt að eitt ár — innandyra. Framleiðandinn tekur fram að efnið sé ætlað til notkunar innandyra og að vatn veiki eða skoli húðinni af. Hlutur í óupphituðum skúr eða úti fær ekki ár.

Húðin kemur af með volgu vatni þegar þú ert tilbúinn að lakka eða meðhöndla hlutinn — og hún á að fara af fyrst, því lökk og húðun binda sig við málminn sjálfan.

Má nota Evapo-Rust á kælikerfi í bíl?

Framleiðandinn lýsir aðferðinni: tæmdu kerfið og skolaðu með vatni, fylltu á með óblönduðu Evapo-Rust, keyrðu vélina venjulega og láttu svo standa frá nokkrum tímum upp í nótt. Tæmdu í ílát til að nota aftur, skolaðu kerfið og fylltu á réttan kælivökva.

Hann gerir líka sérstakt efni fyrir kælikerfi, Thermocure. Hvorugt er á lager hjá okkur sem stendur — hringdu ef þig vantar það.

5 lítrar eða 20?

5 lítra brúsinn dugar í verkfæri, pottjárn, bolta og smáhluti — allt sem kemst í fötu. 20 lítra fatan er fyrir verkstæði og vélarhluti í lotum, og borgar sig um leið og þú ferð að nota sama baðið aftur og aftur. Mundu að vökvinn klárast við mettun, ekki við tíma.

Síminn: 530 5900