Heskins · endurskinslímbönd

Endurskinsborðar

Endurskinsborði skilar ljósinu aftur til þess sem lýsir, svo hlutur sem er ósýnilegur í myrkri verður skyndilega augljós. Kemi býður sex vörulínur frá Heskins, allt frá einföldum glerperluborða upp í ECE 104 viðurkenndan borða fyrir ökutæki, bæði sem lagervöru og sérpöntun.

Steypt súla í dimmu vöruhúsi með bláum endurskinsborða sem lýsir skært, svart-gulur hættuborði á milli og lyftari með rauð ljós í baksýn
6 vörulínurfrá glerperlum upp í örprisma
ECE 104 flokkur Cviðurkennt fyrir ökutæki
15–1244 mmbreiddir eftir vörulínu
Lager + sérpöntunsérbreiddir, form og litir

Hvernig virkar endurskin?

Venjulegt hvítt yfirborð dreifir ljósinu í allar áttir og lítið af því ratar aftur til ökumannsins. Endurskinsborði er gerður til að gera hið gagnstæða: hann sendir ljósið beint til baka í átt að ljósgjafanum. Þess vegna blossar borðinn upp í ljósgeisla bíls þótt umhverfið í kring sé kolniðamyrkur.

Tvær aðferðir eru notaðar. Glerperlur eru örsmáar kúlur í yfirborðinu, raðað í hunangsköku­mynstur; þær brjóta ljósið og skila því til baka í fremur breiðri keilu. Örprismar eru vélrænt mótuð þríhyrnd horn sem spegla ljósið þrisvar og skila því til baka í mun þrengri og bjartari keilu.

Munurinn sést í tölum. Glerperluborði dugar ágætlega í nokkurra metra fjarlægð innandyra, en örprismaborðinn H6612 skilar um 80% ljóssins til baka og ECE 104 borðinn H6632 nær 360 cd/(lx·m²) í hvítu. Það er munurinn á því að sjást þegar ökumaður er kominn að þér og að sjást meðan hann hefur enn tíma til að bregðast við.

Vörunúmer, litakóðar og tæknigildi á þessari síðu eru samkvæmt opinberum vörublöðum Heskins: heskins.com/product-category/reflective-tapes.

Glerperlur

H6601, H6602 og H6604. Þunnir, sveigjanlegir og hagkvæmir. Henta vel á kanta, súlur, stiga, tæki og almennar merkingar.

Örprismar

H6612 og H6632. Mun sterkara endurskin og lengri ending. Rétta valið þegar vegalengd, hraði eða kröfur um viðurkenningu koma við sögu.

Sjór og björgun

H6672 er SOLAS borði fyrir björgunarbúnað, báta og sjávarumhverfi, með MED viðurkenningu og tíu ára líftíma.

Veldu eftir verkefni

Hvaða gerð á ég að velja?

Byrjaðu á því hvað á að sjást, úr hvaða fjarlægð og hvort einhver regla gildir um merkinguna. Það þrengir valið hraðar en liturinn gerir.

Almenn merking

Súlur, kantar, hurðir, handrið, tæki og gámar innandyra og utan. Byrjaðu á H6601 í 25 eða 50 mm.

Sjá H6601 →

Ökutæki í umferð

Vörubílar, eftirvagnar, kerrur og vinnuvélar á vegum. Þar gilda reglur um lit, breidd, staðsetningu og viðurkenningu.

Sjá reglurnar →

Hámarks endurskin

Þegar hluturinn þarf að sjást úr mikilli fjarlægð eða í slæmu skyggni. Örprismaborði eða skáröndóttur DIN borði.

Sjá H6612 og H6604 →

Sjór og björgunarbúnaður

Björgunarbátar, flekar, bjarghringir, bryggjur og búnaður í saltumhverfi. SOLAS viðurkenndur borði.

Sjá H6672 →

Vörulínurnar

Sex endurskinslínur frá Heskins

Hér eru línurnar sex eins og Heskins framleiðir þær. Kemi á valdar gerðir og liti á lager; hitt sækjum við sem sérpöntun. Breiddir og lengdir að neðan eru framleiðslugeta Heskins, ekki endilega það sem liggur á lager hverju sinni.

H6601 — Endurskinsborði

Klassíski glerperluborðinn og mest selda gerðin. Örþunnur, sveigjanlegur og festist á flest hrein, þurr og slétt yfirborð. Hann er grunnvalið í almennar merkingar á köntum, súlum, þrepum, tækjum og hurðum.

EiginleikiGildi
TækniGlerperlur
Þykkt0,19 mm
Breiddir15 mm til 1240 mm
LengdAllt að 10 m
Litir9 (sjá litatöflu)
StaðallRA1 samkvæmt EN 12899-1

Heskins tekur fram að H6601 hafi áður fallið undir flokk 2 í breska staðlinum BS 873. Sá staðall telst úreltur í dag þótt enn sé vísað til hans í daglegu tali. Borðinn er prentanlegur og fæst í allt að 610 mm rúllum fyrir prentvélar.

H6612 — Örprismalímband

Hágæða örprismaborði sem skilar um 80% ljóssins aftur til ljósgjafans. Hann er kallaður EGP, eða engineering grade prismatic, og endist mun lengur en glerperluborði. Þetta er rétta valið þegar hluturinn þarf að sjást úr fjarlægð.

EiginleikiGildi
TækniÖrprismar
Þykkt0,11 til 0,14 mm
Breiddir19 mm til 1210 mm
LengdAllt að 45 m
Litir7, þar af einn flúrgulur
StaðallEN 12899-1; heilir litir RA1, flúrgulur RA2
Endurskinsending5 ár
Þjónustuhiti−23 °C til +65 °C
Áseturshiti4 °C eða hærri

Hentar bæði á kyrrstæða hluti eins og staura, grindur og vélar og á hluti á hreyfingu, svo sem strætisvagna, vörubíla, mótorhjól og báta.

H6604 — Endurskinsborði með mikilli endurskinsgetu

Skáröndóttur rauður og hvítur borði með glerperlum í hunangsköku­mynstri. Rendurnar eru 100 mm breiðar, umtalsvert breiðari en á venjulegum hættuborða, og sjást því úr meiri fjarlægð. Á hverri hvítri rönd er prentað DIN 30710/67520.

EiginleikiGildi
TækniGlerperlur, skáröndótt
Þykkt0,13 mm
Breiddir15 mm til 1220 mm
Lengd45,7 m staðalrúlla
LitirRauður og hvítur
Línubreidd100 mm
EndurskinRauður 65, hvítur 285 cd/(lx·m²)
StaðlarDIN 30710, DIN 67520 og DIN 6171

Fæst með skáröndum sem halla til vinstri eða hægri, svo merkingin geti hallað samhverft út frá miðju ökutækis eða búnaðar. Athugaðu að DIN 30710 er þýskur staðall. Ef þú þarft viðurkennda viðvörunarglitmerkingu samkvæmt ECE-reglum nr. 70 skaltu hafa samband, því það er annar staðall.

H6632 — ECE 104 endurskinsborði fyrir ökutæki

Örprismaborði sem er viðurkenndur og E-merktur samkvæmt ECE-reglum nr. 104, gerður til að teikna útlínur vörubíla og eftirvagna. Kantarnir eru hitainnsiglaðir eftir endilöngu svo vatn komist ekki inn og lögin losni ekki í sundur, og undirlagið er málmfilma varin með plastfilmu. Þess vegna fæst hann aðeins í tveimur breiddum.

EiginleikiGildi
TækniÖrprismar, hitainnsiglaðir kantar
Þykkt0,45 mm álögð (endurskinsgrunnur 0,22 mm)
FilmaPólýkarbónat (PC)
LímBreytt leysiakrýl
Breiddir50 mm og 55 mm (engar aðrar)
Lengd50 m staðalrúlla (50 mm × 50 m)
LitirRauður, gulur og hvítur
ViðurkenningECE-reglur nr. 104, flokkur C, E-merktur (104R)
Þjónustuhiti−30 °C til +80 °C
YfirborðÁl, ryðfrítt stál og bílalökkuð yfirborð

Ætlaður á stífar hliðar. Fyrir segldúkshliðar og sveigjanleg efni þarf aðra lausn og þá er rétt að hafa samband fyrst. Nánar um reglurnar í kaflanum um ökutæki hér fyrir neðan.

H6602 — DOT glerperluborði

Bandaríska hliðstæðan við ECE 104. H6602 er framleiddur fyrir DOT-C2 kröfur og er ætlaður á kerrur, vörubíla og tæki sem eru flutt út eða notuð á Norður-Ameríku­ og Mið-Austurlandamarkaði.

EiginleikiGildi
TækniGlerperlur
Þykkt0,42 mm ± 0,05
Breiddir15 mm til 1244 mm
Lengd45,7 m
LitirHvítur, gulur, rauður og rauður/hvítur
Mynstur152 × 152 mm og 178 × 279 mm
StaðlarFMVSS 108, DOT-C2, ASTM D4956:2013, ASTM E810
Ábyrgð5 ár

DOT-C2 borði er ekki það sama og ECE 104 borði og kemur ekki í staðinn fyrir hann í evrópskri umferð. Veldu H6632 fyrir ökutæki hér á landi.

H6672 — SOLAS endurskinsborði

Sjávarborði fyrir björgunarbúnað, gerður samkvæmt SOLAS reglum Alþjóðasiglinga­málastofnunarinnar. Glerperlur eru felldar í seiga pólýúretanhúð sem þolir salt, útfjólublátt ljós og miklar hitasveiflur, og efnið er eldtefjandi.

EiginleikiGildi
TækniGlerperlur í pólýúretanhúð
Stærð50 mm × 50 m rúllur
Filmuþykkt0,0255 mm
LiturBjartur hvítur (silfur)
ViðurkenningSOLAS/IMO, MED B+D, Type II
Líftími10 ár
Þjónustuhiti−40 °C til +80 °C
YfirborðÁl, trefjaplast og stál

Heskins tekur fram að H6672 er límborði fyrir búnað, ekki fyrir textíl. Hann á ekki að nota á björgunarvesti eða fatnað; þar þarf sérstakt efni með sveigjanlegu undirlagi.

Sérkafli

Endurskinsborðar á ökutæki og reglurnar um þá

Þegar endurskinsborði fer á ökutæki sem ekur í umferð hættir hann að vera smekksatriði. Þá segir reglugerðin til um lit, breidd, staðsetningu og hvaða viðurkenningu borðinn þarf að bera. Kaflinn hér að neðan byggir á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja, liðum 07.00 og 07.02.

Fyrst það sem oftast er misskilið: eftirámerking er heimil, ekki skylda. Í liðum 07.12 (2), 07.14 (2), 07.53 (2) og 07.54 segir reglugerðin að heimilt sé að hópbifreið, vörubifreið og eftirvagn III og IV séu búin auðkenningarborðum og glitmerkingu. Reglugerðin leggur hins vegar ekki þá kvöð á eiganda eldra ökutækis að bæta merkingunni við.

Þetta má þó ekki lesa sem svo að ECE 104 skipti ekki máli hér. Nýrri þungaflutningabílar og eftirvagnar koma með útlínumerkingu frá verksmiðju: frá 10. júlí 2011 hefur gerðarviðurkenning innan EES krafist hennar á nýjum gerðum vörubifreiða yfir 7,5 tonnum (N2 og N3) og eftirvagna yfir 3,5 tonnum (O3 og O4), samkvæmt tilskipun 2007/35/EB sem breytti ljósabúnaðartilskipun 76/756/EBE. Þegar slík verksmiðjumerking skemmist eða er endurnýjuð þarf nýi borðinn að standast sömu kröfu, það er flokk C í ECE 104 og bera E-merkið.

Um leið og borðinn er notaður gilda skýrar kröfur um hann sjálfan.

Auðkenningarborðar

Auðkenningarborði er skilgreindur í reglugerðinni sem borði úr endurskinsefni sem ætlaður er til að auka sýnileika ökutækis. Þetta er sá borði sem teiknar útlínur bílsins eða vagnsins.

AtriðiKrafa samkvæmt lið 07.02 (5)
Litur aftan áRauður
Litur á hliðumGulur eða hvítur
StaðsetningÁ hliðum og aftan á ökutæki
Hæð neðsta hluta250 mm til 1500 mm frá akbraut
Fjarlægð frá hemlaljósumEkki nær áskildum hemlaljósum en 200 mm
Breidd50 mm til 60 mm
Rofin lengdBil milli borðahluta mest 50% af lengd stysta hlutans
ViðurkenningFlokkur C í ECE-reglum nr. 104

H6632 er framleiddur í 50 mm og 55 mm og fellur því innan breiddarkröfunnar, og hann er E-merktur samkvæmt ECE 104. Litirnir þrír, rauður, gulur og hvítur, svara nákvæmlega til þess sem reglugerðin leyfir aftan á og á hliðum.

Hvernig borðinn er lagður á ökutækið

Reglugerðin segir til um lit, breidd og hæð, en sjálf útfærslan — hversu stór hluti ökutækisins er merktur — kemur úr ECE 104 sjálfum. Heskins gefur upp eftirfarandi í leiðbeiningum sínum fyrir H6632.

HvarÚtfærsla
Hlið ökutækisTveir kostir: heil útlínumerking (kassi) eða hlutamerking (hornmerki). Hlutamerking er lágmarkið.
Lengd á hliðMerkingin skal ná yfir a.m.k. 80% af lengd ökutækisins (án húss) eða lengd eftirvagnsins (án dráttarbeislis).
HornmerkiEfra hornmerki skal vera a.m.k. 250 mm í hvora átt.
AfturendiHeil útlínumerking (kassi) er áskilin ef afturendinn er breiðari en 2100 mm.
Breidd að aftanMerkingin skal vera sem næst ystu brún og ná yfir a.m.k. 80% af heildarbreidd ökutækisins.

E-merkið á borðanum sjálfum segir þrennt: flokk endurskinsefnisins, E-merki með landsnúmeri og viðurkenningarnúmerið. Sé merkingin ekki á borðanum er hann ekki viðurkenndur samkvæmt ECE 104, hversu vel sem hann endurkastar.

Glitmerkingar: merki og auglýsingar

Glitmerking er skilgreind sem endurskinsefni sem ætlað er til upplýsinga eða til að auglýsa fyrirtæki, vöru og þess háttar. Hún lýtur öðrum reglum en auðkenningarborðinn.

AtriðiKrafa samkvæmt liðum 07.00 (10) og 07.02 (6)
HvarEinungis á hlið ökutækis og innan marka auðkenningarborða
SkilyrðiEinungis heimil samhliða notkun auðkenningarborða
StyrkurEndurskin skal vera áberandi daufara en frá auðkenningarborðum
LiturMá vera af mismunandi litum
Undir 2 m²Flokkur D í ECE-reglum nr. 104
Yfir 2 m²Flokkur E í ECE-reglum nr. 104

Viðvörunarglitmerkingar

Þetta eru skárendóttu merkin sem notuð eru á horn ökutækja og á búnað sem stendur út fyrir þau. Þau falla undir annan staðal en auðkenningarborðar.

AtriðiKrafa samkvæmt lið 07.02 (7)
LiturRauður og hvítur eða rauður og gulur
StaðsetningSem næst hornum ökutækis og/eða á búnaði sem festur er við það
LögunFerhyrnt, rendur halla 45° niður og út frá ökutækinu
Hámarksstærð200 × 1000 mm
ViðurkenningECE-reglur nr. 70

Viðvörunarglitmerkingar eru líka eina undantekningin frá litareglunni í lið 07.00 (4): rautt endurskin má annars ekki lýsa fram og hvítt endurskin ekki aftur. Skáröndótti DIN borðinn H6604 sem Kemi selur er viðurkenndur samkvæmt DIN 30710 og DIN 67520, ekki ECE 70. Hafðu samband ef verkefnið krefst ECE 70 viðurkenningar.

Neyðarakstursökutæki

Með reglugerð nr. 909/2019 bættist liður 07.02 (8) um sérstakar glitmerkingar við. Þar eru litasamsetningar bundnar við hlutverk: ökutæki lögreglu gulur og blár, slökkviliðs gulur og rauður, sjúkraflutninga gulur og grænn og björgunarsveita gulur og appelsínugulur. Hver flötur skal vera að lágmarki 40 × 40 mm. Ekki er gerð krafa um viðurkenningu á sérstöku glitmerkingunum sjálfum, en viðvörunarglitmerkingar skulu vera viðurkenndar samkvæmt ECE-reglum nr. 70 og 104. Samgöngustofa getur veitt undanþágu frá merkingum eða heimild til frekari merkinga.

Lögreglubifreið og sjúkraflutningabifreið mega samkvæmt lið 07.102 (3) vera búnar glitmerkingu á hlið og að aftan án þess að uppfylla ákvæðin um auðkenningarborða.

Þetta er samantekt til leiðbeiningar, ekki lögfræðiálit. Reglugerðin sjálf gildir og skoðunarstöð eða Samgöngustofa sker úr um einstök ökutæki. Lesa má reglugerðina í heild á reglugerd.is.

Litir og lengdir

Litayfirlit eftir vörulínum

Litakóðar, Pantone- og RAL-tilvísanir og endurskinsgildi eru úr vörublöðum Heskins. LRV stendur fyrir ljósendurkastshlutfall yfirborðsins í dagsbirtu og segir til um hversu ljós liturinn er, ekki hversu sterkt endurskinið er í myrkri.

H6601 endurskinsborði

VörunúmerLiturPantone / RALLRV
H6601RRauðurWarm Red U / RAL 302014
H6601OAppelsínugulur1021 U / RAL 200828
H6601YGulur114 U / RAL 102365,25
H6601VGrænn569 U / RAL 603241
H6601BBlár3005 U / RAL 50177
H6601GBrúnn484 U / RAL 8004—
H6601SHvítur (silfur)421 / RAL 901685
H6601DSvartur/gulur116 U / RAL 9017 + 10060 (svart) / 62 (gult)
H6601ARauður/hvíturWarm Red U + 427 U / RAL 3020 + 703513,5 (rautt) / 84 (hvítt)

Breiddir 15 til 1240 mm og lengd allt að 10 m í framleiðslu. Á lager hjá Kemi eru algengustu litirnir í 25 mm og 50 mm rúllum.

H6612 örprismalímband

VörunúmerLiturPantone / RALLRV
H6612RRauður1795 U / RAL 30201,25
H6612OAppelsínugulur172 U / RAL 301614,75
H6612YGulur109 U / RAL 102670,75
H6612FFlúrgulur3965 U / RAL 7027100
H6612VGrænnGreen U / RAL 60327,25
H6612BBlár3005 U / RAL 50052
H6612WHvítur7541 U / RAL 703546,5

Breiddir 19 til 1210 mm og lengd allt að 45 m. Flúrguli liturinn H6612F er sá eini í línunni sem nær RA2 flokki og er því bjartastur í dagsbirtu jafnt sem myrkri.

H6632 ECE 104 fyrir ökutæki

VörunúmerLiturPantone / RALDæmigert endurskin
H6632WHvítur7541 U / RAL 7047360 cd/(lx·m²)
H6632YGulur123 U / RAL 2007270 cd/(lx·m²)
H6632RRauður711 U / RAL 300265 cd/(lx·m²)

Aðeins 50 mm og 55 mm breidd. Rauður er ætlaður aftan á ökutækið, gulur og hvítur á hliðarnar. Guli liturinn er RAL 2007 og er í raun gulbrúnn eða ravgulur á að líta, sem er sá litur sem ECE 104 skilgreinir fyrir hliðarmerkingu.

H6602 DOT glerperluborði

VörunúmerLiturPantone / RALLRV
H6602WHvítur422 U / RAL 700438,88
H6602YGulur7406 U / RAL 103243,7
H6602RRauður187 U / RAL 302015,22
H6602Rauður/hvítur187 U + 422 U / RAL 3020 + 700415,22 / 38,88

H6604 og H6672

VörunúmerLiturPantone / RALLRV
H6604Rauður/hvítur skáröndóttur485 U + 427 U / RAL 3001 + 703611,95 / 33,9
H6672Bjartur hvítur (silfur)4276 C / RAL 902335,4

Litir á skjá og í prentun geta vikið frá raunlit vörunnar. Ef liturinn skiptir máli fyrir verkefnið skaltu hafa samband áður en pantað er.

Svona festist borðinn

Endurskinsborðar eru með varanlegu sjálflímandi baki og langflest vandamál koma af undirbúningnum, ekki af borðanum sjálfum.

  • Hreinsaðu yfirborðið af fitu, olíu, ryki og lausum ögnum.
  • Þurrkaðu alveg. Rakur flötur gefur lím sem sleppir síðar.
  • Mældu og merktu staðsetninguna áður en bakfilman er tekin af.
  • Límdu við 10 °C eða hærri hita þar sem vörublaðið gerir þá kröfu.
  • Leggðu frá öðrum endanum og þrýstu jafnt niður með rúllu.
  • Gakktu sérstaklega frá köntum og samskeytum þar sem vatn eða þvottabursti nær taki.

Á ökutækjum er þvottur harðasta prófið. Borði sem var lagður á kaldan eða rakan flöt losnar oftast fyrst á köntunum í háþrýstiþvotti.

Áður en þú pantar

Sendu okkur eftirfarandi og við getum sagt þér hvort lausnin er til á lager eða fer í sérpöntun frá Heskins:

  • hvað á að merkja og úr hvaða fjarlægð það þarf að sjást
  • lengd og breidd, og fjölda rúlla
  • lit og hvort merkingin snýr fram, aftur eða til hliðar
  • yfirborðsefnið: ál, stál, lakk, plast eða segldúk
  • hvort ökutækið er í skráðri umferð og hvort skoðun er framundan

Leiðbeiningar frá framleiðanda

Myndbönd frá Heskins

Heskins sýnir hér hvernig endurskinsborði er mældur, skorinn og lagður, hvernig yfirborð er hreinsað fyrir límingu og hvernig þrýstirúlla er notuð á kanta og samskeyti. Myndböndin eru á ensku en handtökin sjást skýrt.

Hvernig endurskinsborði er lagður
Hreinsun yfirborðs fyrir límingu
Þrýstirúlla á samskeyti og kanta

Sjá öll kennslumyndbönd Heskins →

Í vefversluninni

Endurskinsborðar hjá Kemi

Hér sérðu endurskinsborðana sem eru í vefversluninni núna. Verð og lagerstaða birtast á vörusíðunni.

Sérðu ekki þá breidd, lengd eða lit sem þú þarft? Það þýðir ekki að varan sé ófáanleg. Heskins framleiðir allt frá 15 mm upp í rúmlega 1200 mm breidd og sníður einnig form eftir teikningu.

Sérpantanir

Þegar lagerrúllan dugar ekki

Heskins framleiðir sjálft og er með eigin vinnsluvélar, svo úrvalið er mun breiðara en það sem borgar sig að eiga á lager á Íslandi. Við sækjum tilboð þegar verkefnið kallar á annað en staðlaða rúllu.

Hægt er að fá

  • sérbreiddir frá 15 mm upp í rúmlega 1200 mm
  • styttri eða lengri rúllur og sérstakar kjarnastærðir
  • sniðin form, stafi, örvar og merki eftir teikningu
  • prentaða endurskinsborða með texta eða merki
  • sérliti utan staðlaða litakortsins
  • skárendur sem halla til vinstri eða hægri

Gott að hafa í huga

  • sérpöntun hefur lengri afgreiðslutíma en lagervara
  • prentun og sérlitir hafa oft lágmarksmagn
  • ECE 104 borðinn fæst aðeins í 50 mm og 55 mm

Algengar spurningar um endurskinsborða

Hver er munurinn á glerperluborða og örprismaborða?

Glerperluborði er með örsmáum glerperlum í yfirborðinu sem endurkasta ljósinu aftur til ljósgjafans í fremur breiðum keilu. Hann er ódýrari, mjög þunnur og dugar vel í almennar merkingar innandyra og utan.

Örprismaborði er með vélrænt mótuðum prismum sem skila ljósinu til baka í þrengri og bjartari keilu. Endurskinið er margfalt sterkara og endist lengur, en borðinn er dýrari. Þegar vegalengdin er mikil eða ökutæki þarf að sjást í umferð er örprisma nánast alltaf rétta valið.

Er skylda að hafa endurskinsborða á vörubílum og eftirvögnum hér á landi?

Að merkja eldra ökutæki eftir á er heimilt, ekki skylt. Í liðum 07.12 (2), 07.14 (2), 07.53 (2) og 07.54 í reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja segir að heimilt sé að hópbifreið, vörubifreið og eftirvagn III og IV séu búin auðkenningarborðum og glitmerkingu.

Öðru máli gegnir um nýrri ökutæki. Frá 10. júlí 2011 hefur gerðarviðurkenning innan EES krafist útlínumerkingar á nýjum gerðum vörubifreiða yfir 7,5 tonnum (N2 og N3) og eftirvagna yfir 3,5 tonnum (O3 og O4). Þau ökutæki koma merkt frá verksmiðju og merkingunni þarf að halda við.

Reglugerðin setur hins vegar skýrar kröfur um borðann sjálfan um leið og hann er notaður: hann skal vera viðurkenndur og merktur samkvæmt flokki C í ECE-reglum nr. 104, vera 50 til 60 mm breiður, rauður aftan á ökutækinu og gulur eða hvítur á hliðum.

Athugaðu að ökutæki sem er gerðarviðurkennt með merkingu frá framleiðanda getur þurft að halda henni. Ef þú ert í vafa um tiltekið ökutæki skaltu spyrja skoðunarstöð eða Samgöngustofu.

Hvaða breidd á ég að velja á ökutæki?

Reglugerðin segir að breidd auðkenningarborða skuli vera 50 til 60 mm. H6632 frá Heskins er framleiddur í nákvæmlega 50 mm og 55 mm og fellur því innan þess bils. Hann fæst ekki í öðrum breiddum, því kantarnir eru hitainnsiglaðir í framleiðslu til að verja gegn vatni.

Fyrir almennar merkingar sem ekki snúa að ökutækjum ertu ekki bundinn af þessu. Þar eru 25 mm og 50 mm algengustu breiddirnar á lager og Heskins framleiðir allt frá 15 mm upp í rúmlega 1200 mm eftir verkefni.

Má ég setja fyrirtækismerki eða auglýsingu í endurskini á bílinn?

Já, en innan marka. Reglugerðin kallar þetta glitmerkingu og hún er einungis heimil á hlið ökutækis og innan marka auðkenningarborða. Endurskin frá glitmerkingunni skal vera áberandi daufara en endurskinið frá auðkenningarborðunum sjálfum, og glitmerking er aðeins heimil samhliða notkun auðkenningarborða.

Viðurkenningin ræðst af flatarmálinu: sé endurskinsflöturinn minni en 2 m² skal merkingin viðurkennd samkvæmt flokki D í ECE-reglum nr. 104, sé hann stærri en 2 m² samkvæmt flokki E.

Af hverju má rauður borði ekki snúa fram?

Liður 07.00 (4) í reglugerðinni bannar að rautt ljós og endurskin frá rauðum glitaugum og endurskinsmerkjum lýsi fram, og að hvítt ljós og endurskin frá hvítum lýsi aftur. Undantekningin er viðvörunarglitmerkingar, og bakkljós að aftan.

Ástæðan er einföld: aðrir ökumenn lesa stefnu ökutækis af litnum. Rautt sem snýr fram segir ranglega að þú sért að horfa aftan á ökutæki.

Hvað endist endurskinsborði lengi?

Það fer eftir gerð og aðstæðum. Heskins gefur upp fimm ára endurskinsendingu á örprismaborðanum H6612, fimm ára ábyrgð á DOT-borðanum H6602 og tíu ára líftíma á SOLAS-borðanum H6672.

Veður, þvottur, sólarljós og núningur stytta líftímann. Á ökutækjum skiptir mestu að líma á hreint og þurrt yfirborð við að minnsta kosti 10 °C og ganga vel frá köntunum.

Hvaða yfirborð henta?

Endurskinsborðar festast á hreint, þurrt og slétt yfirborð. Á ökutækjum er H6632 ætlaður á ál, ryðfrítt stál og bílalökkuð yfirborð, og á stífar hliðar fremur en segldúk. Ef hliðarnar eru úr segldúk skaltu hafa samband áður en pantað er.

Undirbúningur ræður mestu um endinguna. Hreinsaðu fitu og óhreinindi, þurrkaðu alveg og mældu og merktu áður en bakfilman er tekin af.

Eigið þið allt úrvalið á lager?

Nei. Kemi á valda liti og breiddir á lager, meðal annars algengustu litina af H6601 í 25 mm og 50 mm og ECE 104 borðann í þremur litum. Annað sækjum við sem sérpöntun frá Heskins.

Heskins framleiðir einnig sérbreiddir, sniðin form, sérliti og prentaða borða. Sendu okkur lengd, breidd, lit, fjölda og lýsingu á verkefninu og við metum hvort lausnin er til á lager eða fer í sérpöntun.

Þarftu að sjást betur í myrkri?

Segðu okkur hvað á að merkja, úr hvaða fjarlægð það þarf að sjást og hvort ökutæki kemur við sögu. Við veljum með þér rétta gerð, breidd og lit, og segjum þér hvort hún er til á lager eða fer í sérpöntun frá Heskins.