Bílavarahlutir · kerti
Bosch kerti: hvernig þú velur rétt kerti í bílinn
Kerti í bensínvélar eru bundin við vélina sem þau fara í. Gengjur, lengd, hitagildi og rafskautabil þurfa öll að stemma, og kerti sem skrúfast í gatið er ekki þar með rétta kertið. Hér förum við yfir hvernig týpunúmerið er lesið, hvað skilur tæknistigin að og hvað kertið sjálft segir þér þegar þú tekur það úr.

Hvað gerir kertið?
Háspennukeflið sendir nokkur þúsund volt niður í kertið. Spennan hleypur yfir bilið milli miðrafskautsins og hliðarrafskautsins, og neistinn kveikir í þjappaðri blöndu af bensíni og lofti. Þetta gerist mörg hundruð sinnum á sekúndu í hverjum strokki á meðan vélin gengur.
Kertið gerir meira en að gefa neista. Það þéttir brunahólfið að ofan og leiðir hita frá odddinum út í strokklokið. Hversu hratt það leiðir hitann er hitagildið, og það er sú stærð sem fólk horfir helst fram hjá þegar það velur kerti sjálft.
Þess vegna er ekki hægt að velja kerti eftir því hvað er dýrast eða hvað lítur best út. Vélin var hönnuð fyrir ákveðin mál, ákveðna neistastöðu og ákveðið hitagildi, og kertið þarf að hitta í allt þrennt.
Svona pantar þú rétt kerti
- Byrjaðu á bílnúmeri, VIN eða vörunúmeri í Bílavarahlutaleitinni efst á síðunni.
- Staðfestu vélargerðina ef bíllinn fæst með fleiri en einni.
- Berðu saman týpunúmerið á gamla kertinu við það sem kemur upp.
- Pantaðu eitt á hvern strokk, nema vélin sé með tvö kerti á strokk.
Hlutar kertisins
Þessi sex atriði eru það sem skilur eitt kerti frá öðru. Fjögur þeirra þurfa að passa við vélina upp á millimetra.


| Nr. | Hluti | Hvað hann gerir |
|---|---|---|
| 1 | Tengipinni | Háspennan kemur hér inn, frá kertaþræði eða kefli sem situr beint ofan á. |
| 2 | Einangrari | Postulínið sem heldur spennunni þar sem hún á að vera. Sprunga í honum þýðir að neistinn finnur sér styttri leið. |
| 3 | Sexkantur | Það sem kertalykillinn tekur á. Lykilmálið fylgir gengjunum og er oftast 16 mm. |
| 4 | Þéttiflötur | Flatur með þéttihring eða keilulaga án hans. Hann ræður því hvar kertið stöðvast í lokinu. |
| 5 | Gengjur | Þvermál, stigning og lengd. Of löng gengja stendur inn í brunahólfið og getur rekist í stimpilinn. |
| 6 | Rafskaut | Miðrafskautið og hliðarrafskautið. Bilið milli þeirra er rafskautabilið og það er stillt frá verksmiðju. |
Týpunúmerið lesið
Bosch skrifar eiginleika kertisins inn í nafnið sjálft. Stafirnir koma í fastri röð og hver staða svarar einni spurningu. Hér er FR 6 LDC rakið, kerti sem er í flokknum hjá okkur.
| Staða | Stafur | Hvað hann segir |
|---|---|---|
| Gengjur, þéttiflötur og lykilmál | F | M14 × 1,25, flatur þéttiflötur, lykilmál 16 mm |
| Gerð | — | Autt þýðir venjulegt kerti. Sérgerðir fá staf hér: A fyrir EVO, S fyrir smávélakerti, M fyrir mótorsport. |
| Viðnám | R | Með truflanaviðnámi. Autt þýðir án viðnáms. |
| Hitagildi | 6 | Miðlungs á Bosch-kvarðanum. |
| Lengd gengja og neistastaða | L | Gengjulengd 18,5–21,5 mm, neistastaða 5. |
| Fjöldi hliðarrafskauta | D | Tvö. Autt þýðir eitt, T þrjú og Q fjögur. |
| Miðrafskaut | C | Nikkelblendi með koparkjarna. |
Fyrsti stafurinn: gengjur og lykilmál
Þetta er stafurinn sem ræður hvort kertið skrúfast yfirleitt í lokið. Taflan nær yfir þau gengjumál sem eru í úrvalinu hjá okkur.
| Stafur | Gengjur | Þéttiflötur | Lykilmál |
|---|---|---|---|
| A | M12 × 1,25 | Keilulaga | 14 mm |
| F | M14 × 1,25 | Flatur | 16 mm |
| H | M14 × 1,25 | Keilulaga | 16 mm |
| U | M10 × 1 | Flatur | 16 mm |
| V | M12 × 1,25 | Flatur | 14 mm |
| W | M14 × 1,25 | Flatur | 20,8 eða 19 mm |
| Y | M12 × 1,25 | Flatur | 16 mm |
| Z | M12 × 1,25 | Flatur | 14 mm |
Efnið í rafskautunum
Stafirnir aftar í númerinu segja úr hverju rafskautin eru. Það er þetta sem ræður mestu um hvað kertið endist lengi.
| Rafskaut | Stafur | Efni |
|---|---|---|
| Miðrafskaut | C eða E | Nikkelblendi með koparkjarna |
| Miðrafskaut | (autt) | Heilt nikkelblendi |
| Miðrafskaut | P eða PP | Platína soðin á nikkelblendi, PP með koparkjarna |
| Miðrafskaut | I eða II | Iridíum soðið á nikkelblendi, II með koparkjarna |
| Hliðarrafskaut | N | Nikkelblendi |
| Hliðarrafskaut | T | Platína soðin á nikkelblendi |
| Hliðarrafskaut | D | Iridíum soðið á nikkelblendi |
Hitagildið
Hitagildið segir hversu hratt kertið leiðir hita frá oddinum og út í strokklokið. Það er ekki mælikvarði á gæði heldur á hvaða vél kertið á við.
Hátt hitagildi: heitt kerti
Leiðir hitann hægar frá sér og helst því heitara. Það brennir af sér sót og hentar vélum með minna afl og lægri þjöppun.
Of heitt kerti í rangri vél getur kveikt í blöndunni áður en neistinn kemur, og þá fer álagið á stimpilinn.
Lágt hitagildi: kalt kerti
Leiðir hitann hraðar frá sér og helst svalara. Það er notað í aflmeiri vélum, háþjöppuðum vélum og forþjöppuvélum til að verjast ofhitnun og banki.
Of kalt kerti nær ekki að brenna af sér sótið og fer að hiksta, sérstaklega í stuttum ferðum.
Tæknistigin í úrvalinu
Munurinn á gerðunum liggur í efninu í rafskautunum og í því hvernig neistinn myndast. Dýrara kerti kveikir ekki betur í réttri vél, en það heldur réttu bili lengur.
| Gerð | Rafskaut | Viðmið um endingu | Hvað einkennir hana |
|---|---|---|---|
| Nickel | Nikkel eða nikkel-yttríum á báðum | 30.000–50.000 km | Grunngerðin og sú sem flest eldri kerfi voru hönnuð fyrir. |
| Super 4 | Fjögur hliðarrafskaut úr nikkeli | 30.000–50.000 km | Neistinn finnur sér leið að því rafskauti sem er hreinast hverju sinni. |
| Platinum | Platína á miðrafskauti | 60.000–100.000 km | Slitnar hægar en nikkel og heldur bilinu lengur. |
| Iridium | Iridíum á miðrafskauti | 60.000–100.000 km | Fínn iridíumpinni sem þarf minni spennu til að kveikja. |
| Platinum Iridium Evo | Iridíum í miðju, platína á hlið | 60.000–100.000 km | Lengri einangrari fyrir vélar sem þurfa háa kveikjuspennu. |
| Double Platinum | Platína á báðum rafskautum | 90.000–150.000 km | Gerð fyrir kerfi þar sem neistinn hleypur í báðar áttir. |
| Double Iridium | Iridíum á báðum rafskautum | 120.000–200.000 km | Lengsta endingin í úrvalinu. |
Bosch kerti í vefversluninni
Röðin sýnir það sem oftast er pantað úr flokknum. Verð og lagerstaða fylgja hverri vöru, og hver vörusíða ber týpunúmerið, vörunúmerið og endingarviðmiðið.
Kerti í sláttuvélar og smávélar
Kertin í smávélar eru í sérflokki og eru frá BRISK en ekki Bosch. Þau nota annað gerðarkerfi, til dæmis BPM6A og CMR5H, svo týpunúmerakaflinn hér að ofan á ekki við um þau. Taktu gamla kertið með eða flettu upp gerðinni á vélinni.
Hitt í kveikjukerfinu
Kertið er endinn á keðjunni. Þegar vélin hikstar er það ekki alltaf kertinu að kenna, og það borgar sig að vita hvað liggur á undan því.
Háspennukefli
Keflið býr til spennuna sem kertið þarf. Bilað kefli veldur nákvæmlega sömu einkennum og útslitið kerti, svo það er næsta skref þegar ný kerti laga ekki hikstið.
Skoða háspennukefli →Glóðarkerti eru annað mál
Dísilvél kveikir í eldsneytinu með þjöppun og hefur engin kerti í þessum skilningi. Glóðarkertið gefur engan neista heldur hitar hólfið svo vélin fari í gang í kulda.
Skoða glóðarkerti →Lestu kertið
Gamalt kerti segir töluvert um ástand vélarinnar. Leggðu kertin á borðið í þeirri röð sem þau komu úr, því eitt kerti sem sker sig úr bendir á einn strokk frekar en á vélina alla.
| Það sem þú sérð | Hvað veldur | Hvað á að gera |
|---|---|---|
| Ljósgrár, ljósgulur eða ljósbrúnn einangrari | Ekkert. Svona á kerti að líta út. | Settu það aftur í eða skiptu eftir millibili. |
| Þurrt, mattsvart sót | Of feit blanda, stífluð loftsía, mikill stuttferðaakstur eða of lágt hitagildi. | Skoðaðu loftsíuna og blönduna. Ný kerti duga ekki ein og sér. |
| Blaut, gljáandi olíuskán | Olía kemst í brunahólfið: slitnir stimpilhringir, ventilstýringar eða of há olíuhæð. | Vélin þarf skoðun. Ný kerti á eftir, ekki á undan. |
| Mikið slit á miðrafskautinu | Kertin hafa gengið of lengi og bilið er orðið of stórt fyrir kveikjuspennuna. | Ný kerti. Þetta er algengasta ástæðan fyrir hiksti í inngjöf. |
| Bráðið eða blöðrótt miðrafskaut | Of mikill hiti: sjálfsíkveikja, of snemmbúin kveiking, bank eða of lágt hitagildi. | Láttu skoða vél og kveikingu áður en ný kerti fara í. |
| Þykk, ljósbrún gljáskán á einangraranum | Íblöndunarefni í eldsneyti sem brennur í gljáa undir miklu álagi. | Ný kerti. Að hreinsa þau skilar engu. |
| Þykk, laus aska | Íblöndunarefni úr smurolíu sem setjast í brunahólfið. | Skoðaðu olíunotkunina og íhugaðu aðra olíu. Ný kerti. |
| Rauðbrún eða appelsínugul skán | Járnblandað eldsneytisíblöndunarefni. Skánin leiðir straum. | Ný kerti. Hreinsun dugar ekki hér heldur. |
| Sprunga í einangraranum | Högg eða þrýstingur á miðrafskautið, oftast af því að kertið datt eða var þvingað. | Ný kerti, og farðu varlega með þau sem eftir eru. |
Skiptin sjálf
Kertaskipti eru einfalt verk þegar kertin eru aðgengileg, en þau fyrirgefa illa ef flýtt er sér. Við seljum kertin en vinnum ekki verkið, svo tölurnar sem máli skipta koma úr handbók bílsins.
Áður en þú skrúfar úr
- Láttu vélina kólna. Álstrokklok og heitar gengjur fara illa saman.
- Blástu eða sópaðu óhreinindin úr kertaholunum fyrst, svo ekkert detti ofan í strokkinn.
- Merktu kertaþræðina eða keflin ef þau eru ekki sjálfmerkt.
- Leggðu gömlu kertin í röð þegar þau koma úr.
Við ísetningu
- Skrúfaðu fyrstu snúningana í höndunum. Finnir þú fyrirstöðu, byrjaðu upp á nýtt frekar en að þvinga.
- Herðið í það átak sem handbókin gefur upp. Of laust kerti leiðir hitann ekki frá sér og of fast rífur gengjurnar.
- Ekki beygja hliðarrafskautið og ekki snerta oddinn.
- Skiptu um öll kertin í einu.
Hvað þarf að liggja fyrir áður en pantað er?
Því fleira sem liggur fyrir, því færri útgáfur þarf að útiloka. Eitt af þessu dugar oftast, en tvennt gerir það öruggt.
| Atriði | Hvað það segir | Hvar þú finnur það |
|---|---|---|
| Bílnúmer eða VIN | Gerð, árgerð, vél og búnað. | Bílavarahlutaleitin efst á síðunni. |
| Vélargerð | Sama bílgerð getur verið með fleiri en eina vél og ólík kerti. | Skráningarskírteinið og VIN-númerið. |
| Bosch-vörunúmer | Ótvíræð auðkenning á nákvæmlega því kerti. | Tíu stafa númerið á pakkningunni, til dæmis 0 242 240 566. |
| Týpunúmer | Mál, hitagildi og rafskaut gamla kertisins. | Prentað á einangrarann sjálfan. |
| Fjöldi | Hvað þarf að panta mörg. | Eitt á hvern strokk, nema vélin sé með tvö kerti á strokk. |
Algengar spurningar um kerti
Hvað endast kerti lengi?
Það fer eftir gerðinni. Nikkelkerti eru yfirleitt miðuð við 30.000–50.000 km, platínu- og iridíumkerti við 60.000–100.000 og Double Iridium allt að 120.000–200.000 km. Þessi viðmið standa á vörusíðunum hjá okkur.
Þjónustuáætlun bílsins ræður samt alltaf. Framleiðandinn þekkir vélina og setur millibilið eftir henni, ekki eftir efninu í rafskautinu.
Má ég setja iridíumkerti í staðinn fyrir nikkelkerti?
Aðeins ef framleiðandi bílsins tilgreinir þá gerð. Málin þurfa að stemma alveg eins og áður, og hitagildið líka. Betra efni í rafskautinu bætir ekki upp fyrir rangt hitagildi.
Í mörgum vélum er iridíumkerti einfaldlega það sem á að vera þar, og þá er ekkert val í málinu. Flettu upp á bílnúmerinu og sjáðu hvað kemur upp.
Á ég að stilla rafskautabilið?
Nei. Kertin koma rétt stillt frá Bosch og eru tilbúin beint úr pakkanum.
Á platínu- og iridíumkertum er beinlínis skaðlegt að reyna það. Fíni pinninn og þunna húðin þola ekki að rafskautið sé beygt, og kertið er ónýtt eftir á þótt bilið mælist rétt.
Hvað þýðir hitagildið?
Það segir hversu hratt kertið leiðir hita frá sér inn í strokklokið. Hátt gildi er heitt kerti sem heldur hita og brennir af sér sót. Lágt gildi er kalt kerti sem losar hitann hraðar og hentar vélum með háa þjöppun eða forþjöppu.
Rangt hitagildi er ekki smáatriði. Of kalt kerti sótar sig upp og of heitt kerti getur kveikt í blöndunni of snemma og skemmt stimpilinn.
Athugaðu líka að kvarðinn er ekki sá sami hjá öllum framleiðendum. Hitagildi 7 hjá Bosch svarar ekki til hitagildis 7 hjá næsta merki.
Er í lagi að skipta bara um eitt kerti?
Í neyð, en það er ekki það sem á að gera. Kertin í vélinni hafa gengið jafn lengi og slitnað álíka mikið, svo eitt nýtt innan um þrjú þreytt skilar ójafnri brennslu.
Vinnan er líka sú sama hvort sem þú tekur eitt eða fjögur.
Hvernig les ég týpunúmerið á kertinu?
Hver stafur stendur fyrir eitt atriði í fastri röð: gengjur og lykilmál, gerð, viðnám, hitagildi, gengjulengd, fjölda hliðarrafskauta og efnið í rafskautunum. Taflan hér að ofan rekur dæmið FR 6 LDC staða fyrir stöðu.
Lengstu númerin bæta við útfærslu, tengipinna og rafskautabili. Þegar þú pantar er öruggast að gefa upp tíu stafa Bosch-vörunúmerið af pakkningunni eða bílnúmerið, því þá þarf enginn að ráða í stafina.
Hvað er glóðarkerti og af hverju á ég ekki að panta það?
Glóðarkerti er í dísilvélum og það gefur engan neista. Það hitnar og hjálpar vélinni að fara í gang í kulda. Dísilvél kveikir í eldsneytinu með þjöppun einni saman og hefur því engin kerti í þeim skilningi sem þessi síða fjallar um.
Af hverju er kertið svart þegar ég tek það úr?
Þurrt mattsvart sót kemur af of feitri blöndu, stíflaðri loftsíu, mikilli stuttferðakeyrslu eða of lágu hitagildi. Blaut og gljáandi svört skán er aftur á móti olía, og þá liggur vandinn í vélinni sjálfri.
Taflan „Lestu kertið” hér að ofan fer yfir muninn og hvað á að gera í hvoru tilviki.
Eigið þið kerti í sláttuvélar og smávélar?
Já, þau eru í sérflokki og eru frá BRISK. Þau eru auðkennd með gerðarnúmerum eins og BPM6A og CMR5H, sem er annað kerfi en Bosch notar.
Taktu gamla kertið með eða flettu upp gerðarnúmerinu á vélinni, því eitt rangt kerti í sláttuvél endar oft með því að hún fer alls ekki í gang.
Þarf að smyrja gengjurnar áður en kertið fer í?
Yfirleitt ekki. Bosch-kerti eru með nikkelhúðuðum gengjum einmitt til þess að þær festist ekki í álstrokkloki, svo þau eru hugsuð fyrir ísetningu þurr.
Fylgdu því sem framleiðandi bílsins segir. Smurefni á gengjum breytir herðiátakinu og of mikið átak getur rifið gengjurnar úr lokinu.
Finnum réttu kertin saman
Byrjaðu á bílnúmerinu. Ef þú ert með gamla kertið við höndina skaltu lesa upp týpunúmerið sem stendur á einangraranum, þá er málið oftast afgreitt í einu símtali.
Varahlutadeildin: 530 5900



























