Fróðleikur

Legur: gerðir, stærðir og hvernig þú velur rétta legu

Þú stendur með gamla legu í hendinni og það stendur 6204-2RS á hringnum. Í því númeri er öll málsetningin, gerðin og lokin. Hér er farið yfir hvernig þú lest það, hvað d × D × B þýðir, hvaða gerðir eru til og hvað ræður valinu þegar enginn miði er lengur læsilegur.

Kúlulega með gúmmílokum, keflalega kónísk, innleggslega og leguhús
d × D × BInnra mál, ytra mál, breidd. Stendur í titli hverrar legu hjá okkur
04 = 20 mmTveir síðustu tölustafirnir sinnum fimm
2RSViðskeytið. Lokin, legubilið og búrið standa þar
C3Aukið legubil. Fyrir hita og fastar mátanir

Hvað gerir lega

Lega heldur öxli á sínum stað og lætur hann snúast með sem allra minnstum núningi. Hún tekur við álaginu af öxlinum og skilar því út í húsið eða grindina, og hún gerir það með því að láta hertar kúlur eða kefli rúlla á milli tveggja slípaðra brauta í stað þess að láta málm renna á málmi.

Skýringarmynd af hlutum kúlulegu: innri hringur, ytri hringur, kúlur, búr og þétting
Fimm hlutar. Innri hringurinn situr á öxlinum og ytri hringurinn í húsinu. Á milli þeirra rúlla veltiefnin, kúlur eða kefli, eftir slípuðum brautum. Búrið heldur jöfnu bili á milli þeirra svo þau rekist ekki saman, og þéttingin heldur feitinni inni og óhreinindum úti.

Veltilega eða fóðring?

Veltilega

Kúlur eða kefli rúlla á milli hringjanna. Núningurinn er lítill, hann er nánast sá sami við ræsingu og á fullum snúningi, og legan þolir hraða.

Hún þarf nákvæma mátun, hreinlæti og rétta smurningu. Þetta er sú lega sem þessi síða fjallar um.

Rennilega eða fóðring

Öxullinn rennur beint í bronsi, plasti eða samsettu efni. Engir lausir hlutar, tekur vel við höggum og titringi og þolir óhreinindi betur.

Núningurinn er mun meiri við ræsingu og hún þolir ekki sama hraða. Þú finnur hana í liðum, sveifluörmum og hæggengum búnaði fremur en á snúningsöxli.

Lega bilar sjaldan af elli. Langalgengustu orsakirnar eru röng málsetning, röng mátun, óhreinindi og röng eða of lítil smurning. Fjórar af þessum fimm ákvarðast áður en legan fer í, og það er þess vegna sem þessi síða byrjar á málunum.

Málsetningin: d × D × B

Þrjú mál lýsa nánast hverri legu. d er innra málið, gatið sem fer á öxulinn. D er ytra málið, það sem fer í húsið. B er breiddin. Þau eru alltaf skrifuð í þessari röð og alltaf í millimetrum nema annað sé tekið fram.

Skýringarmynd: d er innra mál, D ytra mál og B breidd legunnar
Alltaf í sömu röð. Innra málið fyrst, þá ytra málið, þá breiddin. Lega sem er merkt 20 × 47 × 14 er með 20 mm gat, 47 mm að utan og 14 mm breið.

Hvernig þú mælir rétt

  1. Mældu á legunni, ekki á öxlinum. Slitinn öxull mælist minni en hann á að vera og þá kaupirðu ranga legu. Mældu gatið á innri hringnum með skurðmáli.
  2. Mældu ytra málið á ytri hringnum sjálfum, ekki á húsinu. Hús sem hefur verið snúið í eða soðið í er ekki lengur rétt viðmið.
  3. Breiddin er mæld yfir ytri hringinn. Á innleggslegum stendur innri hringurinn út fyrir þann ytri og þá eru breiddirnar tvær, sjá töfluna hér á eftir.
  4. Rúnnaðu að næsta staðlaða máli. Legumál eru stöðluð. Mælirðu 46,9 mm að utan er legan 47 mm; gatið er framleitt örlítið undir nafnmálinu af ásettu ráði svo hún sitji fast á öxlinum.

Mældu alltaf sjálf/ur ef númerið er ólæsilegt. Þrjú mál duga til að finna legu í langflestum tilvikum, og við getum flett þeim upp fyrir þig. Hringdu í 530 5900 með málin og segðu okkur hvort hún var opin, með járnlokum eða gúmmílokum.

Titillinn á hverri vöru er málsetningin

Við skrifum málin fremst í titilinn á hverri legu, svo þú getur leitað beint að málunum í leitarglugganum okkar í stað númersins. Svona lesast þau:

Titill hjá okkurdDBHvað liggur að baki
Lega 20X47X14 Kúlulega lokuð20 mm47 mm14 mmVenjuleg djúpspora kúlulega, 6204-2RS
Lega 25X52X15 Kúlulega opin25 mm52 mm15 mmSama lega án loka, 6205
Lega 32X58X13 Kúlulega lokuð32 mm58 mm13 mmGatið gengur ekki upp í fimm, svo númerið er 60/32
Lega 3/4″X47X31 Kúlul.rúnuð ut19,05 mm47 mm31 mmTommugat. UC204-12S í innleggshús
Lega 20x47x14/24.7 rúnuð utan20 mm47 mm14 / 24,7 mmFjórða talan er heildarbreidd innri hringsins
Dæmi úr úrvalinu. Fyrstu þrjár tölurnar eru alltaf d × D × B.

Tommugöt og fjórða talan

Tommugöt

Hluti af innleggslegum er með tommugat, einkum í búvélum og færiböndum af bandarískum og breskum uppruna. Við skrifum það eins og það er: 3/4″, 1.1/4, 1.3/4, 2″.

Reiknaðu aldrei upp á næsta heila millimetra. 3/4″ er 19,05 mm og 1″ er 25,4 mm, og lega með 19 mm gat passar ekki á 19,05 mm öxul.

Þegar tölurnar eru fjórar

Á innleggslegum og sumum tvöföldum legum stendur fjórða talan fyrir heildarbreidd innri hringsins, sem er meiri en breidd ytri hringsins.

UB204 er skrifuð 20x47x14/24.7: ytri hringurinn er 14 mm breiður en innri hringurinn 24,7 mm, því hann stendur út til að taka stilliskrúfur eða stút.

Legunúmerið: hvað stafirnir þýða

Númerið á hringnum er ekki framleiðslunúmer. Það er lýsing samkvæmt ISO-staðli og hver stafur hefur fasta merkingu. Þegar þú kannt að lesa það þarftu hvorki vörulista né mæliband til að vita hvað þú ert með í hendinni.

6204-2RS

6Gerðin. Djúpspora kúlulega
2Þversniðsröðin. Meðalstór
04Innra málið. 04 × 5 = 20 mm
2RSViðskeytið. Tvö gúmmílok

Þetta er 20 mm lega, 47 mm að utan og 14 mm breið, lokuð báðum megin. Allt það stendur í fjórum stöfum og einu viðskeyti.

Tveir síðustu tölustafirnir: innra málið

Reglan er einföld þegar komið er upp fyrir 17 mm, en fjögur fyrstu málin eru undantekningar sem borgar sig að kunna utan að.

KóðiInnra málDæmi
Einn tölustafur, 608Talan sjálf608 er með 8 mm gat
0010 mm6200, 6300
0112 mm6201, 6001
0215 mm6202, 6302
0317 mm6203, 6303
04 og upp úrKóðinn sinnum 56204 er 20 mm, 6210 er 50 mm, 6020 er 100 mm
Með skástrikiMálið skrifað beint60/32 er 32 mm, 62/28 er 28 mm, 63/22 er 22 mm
Innra málið út frá kóðanum. Sama regla gildir fyrir allar gerðir, ekki bara kúlulegur.

Skástrikið þýðir að gatið gengur ekki upp í fimm. Lega sem er merkt 60/32 er með 32 mm gat, ekki 160 mm. Við eigum nokkur slík mál, 22, 28 og 32 mm, og þau koma gjarnan fyrir í hjólabúnaði og á minni vélum.

Annar tölustafurinn: hversu stór legan er utan um gatið

Þversniðsröðin segir hversu mikinn málm legan hefur utan um sama gat. Hærri tala þýðir stærra ytra mál, meiri breidd og meira burðarþol, en líka meira pláss og hærra verð. Allar sex legurnar í töflunni eru til hjá okkur og þær eru allar með 20 mm gat:

Sex kúlulegur með 20 mm gati teiknaðar í réttum hlutföllum: 6804, 6904, 6004, 6204, 6304 og 6404
Sama gat, sex stærðir. Teiknað í réttum hlutföllum eftir málunum úr vörulistanum okkar. 6404 er meira en tvöfalt þykkari í þversniði en 6804, og það er munurinn sem annar tölustafurinn lýsir.
Númerd × D × BRöðHvar hún á við
680420 × 32 × 718, mjög grönnÞar sem plássið er ekkert og álagið lítið
690420 × 37 × 919, grönnLétt álag, lítið byggingarrými
600420 × 42 × 1210, léttAlmenn notkun á minni búnaði
620420 × 47 × 1402, meðalAlgengasta röðin. Rafmótorar, dælur, almennt viðhald
630420 × 52 × 1503, þungSama gat, meira burðarþol og meiri þvermál
640420 × 72 × 1904, mjög þungÞungt álag á grönnum öxli
Þversniðsraðir með sama innra mál. Málin eru tekin beint úr vörutitlunum okkar.

Fyrsti stafurinn: gerðin

Fyrsti stafurGerðDæmi hjá okkurHvað einkennir hana
6Djúpspora kúlulega6204, 6305, 6004Langalgengasta legan
7Hornsnertilega7205BW, 7305BWTekur ásálag í aðra áttina. Oftast notaðar tvær saman
1Sjálfstillandi kúlulega1204, 1210, 1308Tvær raðir af kúlum, þolir skekkju
2Sjálfstillandi kúlulega eða veltikeflalega2207, 2310, 22209, 21310Fjórir stafir eru kúlulega, fimm stafir eru keflalega
3Keflalega kónísk30205, 32005, HR30212JGeislaálag og ásálag saman
5Þrýstilega51103, 51205Hreint ásálag
N, NU, NJRúllulegaNU312Mikið geislaálag, hringirnir aðskiljanlegir
Algengustu gerðarstafirnir og dæmi úr úrvalinu okkar.

Bókstafir fremst eru framleiðandans, ekki staðalsins. HR30205J er sama keflalega og 30205; HR og J eru merkingar NSK um útfærslu og efni. Leitaðu að kjarnanum í númerinu þegar þú berð saman tvo vörulista.

Viðskeytin aftan við númerið

Allt sem kemur á eftir grunnnúmerinu lýsir útfærslu. Það er þar sem lokin, legubilið, búrið og efnið standa, og tvær legur með sama grunnnúmeri geta hentað í gjörólík verk eftir því hvað stendur þar.

ViðskeytiHvað það þýðirHvað það hefur að segja
2RS, RS2, DDU, LLU, VVTvö gúmmílokÞéttingin snertir innri hringinn. Besta vörnin gegn vatni og ryki. Aðeins meiri núningur og lægri hámarkshraði
ZZ, 2ZTvö málmlokLokin snerta ekki, svo núningurinn er minni og hraðinn meiri. Halda grófum óhreinindum úti en ekki vatni
DDLokuð báðum meginMerking NSK fyrir gúmmíþéttingu. Vörurnar okkar með DD heita „kúlulega lokuð”
Ekkert viðskeytiOpin legaEngin lok. Þarf þéttingu í húsinu og smurningu þaðan. Má þvo og pakka upp á nýtt
NRSplittisrauf og splittiRauf í ytri hringnum með láshring. Staðsetur leguna í gegnumgangandi húsi
NSplittisrauf án splittisSama rauf, láshringurinn fylgir ekki
C2, CN, C3, C4, C5LegubiliðCN er venjulegt og er ekki skrifað. Sjá næsta kafla
KKónískt gatGatið er keilulaga 1:12 og legan fer á fleyg eða spennuhólk
MMessingbúrFyrir hærri hita, meiri hraða og þyngra álag en stálbúr
TN, TN9PlastbúrLétt, hljóðlátt og þolir titring vel. Takmarkað hitaþol
E, ECStyrkt útfærslaFleiri eða stærri veltiefni, meira burðarþol í sama rými
SSRyðfríÍ okkar vörunúmerum. Fyrir bleytu, matvælavinnslu og þvottaumhverfi
Algengustu viðskeytin. Framleiðendur nota ekki allir sömu stafina um sama hlutinn, svo berðu saman við vörulista framleiðandans þegar það skiptir máli.

Sama lega, þrenns konar lok. 6204 er opin, 6204ZZ er með járnlokum og 6204-2RS er með gúmmílokum. Málin þrjú eru nákvæmlega þau sömu og allar þrjár passa í sama húsið. Valið snýst um hvað þarf að halda úti og hversu hratt legan snýst.

Legubil: af hverju C3?

Legubil er leikurinn á milli veltiefnanna og brautanna áður en legan fer í. Þetta er ekki framleiðsluskekkja heldur hönnunarstærð, því bilið minnkar þegar legan er komin í vinnu. Þétt mátun á öxul þenur innri hringinn út, og hiti þenur innri hringinn meira en þann ytri af því að hitinn verður til inni í legunni og leitar út.

Þess vegna er valið svona: sé búist við því að bilið minnki mikið í vinnu, veljum við legu sem byrjar með meira bil. Það er allt sem C3 þýðir.

FlokkurBilHvenær hann á við
C2Minna en venjulegtÞar sem nákvæmni og lítill leikur skipta mestu
CNVenjulegtSjálfgefið og er ekki skrifað í númerið. Á við í langflestum tilvikum
C3AukiðHiti á legunni, þétt mátun á báðum hringjum, rafmótorar, titringur
C4Mikið aukiðMikill hiti eða mjög þétt mátun
C5MestSérhæfð notkun
Legubilsflokkar. Flokkurinn stendur aftast í númerinu, til dæmis 6205C3.

C3-lega finnst lausari í hendi en venjuleg lega og það er rétt eins og það á að vera. Hún er ekki slitin og hún er ekki gölluð. Lega sem er sett í með of litlu bili klemmist þegar hún hitnar, og þá hitnar hún enn meira. Sú hringrás endar alltaf á sama stað.

Skiptu ekki yfir í C3 upp á von og óvon. Ef framleiðandi tækisins tilgreinir venjulegt bil, settu venjulegt bil í. C3 á heima þar sem hitinn, mátunin eða handbókin kalla á það. Stóð C3 á gömlu legunni, settu C3 í aftur.

Gerðirnar og hvað hver þeirra er góð í

Gerðin ræðst af því úr hvaða átt álagið kemur, hversu hratt öxullinn snýst og hvort eitthvað má skekkjast. Hér eru þær gerðir sem við eigum, hver með sínu hlutverki.

Djúpspora kúlulega, opin

Djúpspora kúlulega

Kúlur í djúpri braut í báðum hringjum. Hún tekur geislaálag vel og talsvert ásálag í báðar áttir, þolir mestan hraða af öllum gerðum og er ódýrust.

Þetta er fyrsta svarið í langflestum verkum: rafmótorar, dælur, viftur, hjól, færibönd og allt almennt viðhald. Hún þolir hins vegar enga skekkju að ráði.

Innleggslega með rúnnuðu ytra máli og stilliskrúfum

Innleggslega, rúnuð utan

Kúlulega með kúlulaga ytra máli og breiðari innri hring. Hún stillir sig sjálf í húsinu og er fest á öxulinn með stilliskrúfum eða stút, án þess að öxullinn þurfi öxlun eða lásrauf.

Hún er gerð fyrir leguhús og er því algengust í búvélum, færiböndum, blásurum og öllu því sem er sett saman úr öxli og festingu fremur en vélarhúsi.

Sjálfstillandi kúlulega með tveimur röðum af kúlum

Sjálfstillandi kúlulega

Tvær raðir af kúlum sem rúlla í einni kúlulaga braut í ytri hringnum. Þess vegna má innri hringurinn halla án þess að legan klemmist.

Hún er til fyrir löng öxulbil, grindur sem svigna og þar sem ekki er hægt að tryggja að tvö legusæti standi nákvæmlega í línu. Hún tekur minna álag en djúpspora lega af sömu stærð.

Veltikeflalega með tveimur röðum af tunnulaga keflum

Veltikeflalega

Sama hugmynd og að ofan en með tunnulaga keflum í stað kúlna. Snertiflöturinn er margfalt stærri, svo burðarþolið er miklu meira.

Hún er þar sem álagið er þungt og skekkjan óhjákvæmileg: hrærivélar, mulningsbúnaður, stórir blásarar og vinnuvélar.

Keflalega kónísk með aðskildum ytri hring

Keflalega kónísk

Keilulaga kefli á milli keilulaga brauta. Hún tekur þungt geislaálag og þungt ásálag í aðra áttina samtímis, og hringirnir eru aðskildir svo hana má setja í sitt í hvoru lagi.

Hún er nánast alltaf notuð í pörum, hvor á móti annarri, og þá er hægt að stilla leikinn við samsetningu. Hjólnöf, drifsköft og gírkassar.

Rúllulega NU með sívölum keflum og messingbúri

Rúllulega

Sívöl kefli, lína af snertingu í stað punkts. Hún tekur meira geislaálag en kúlulega af sömu stærð og þolir mikinn hraða.

Í NU-útfærslunni hefur ytri hringurinn engar axlir, svo öxullinn má hreyfast eftir endilöngu þegar hann lengist við hita. Hún tekur ekkert ásálag.

Þrýstilega: tveir skífur með kúlum á milli

Þrýstilega

Tvær skífur með kúlum á milli. Hún tekur ásálag og ekkert annað, og hún verður að hafa stöðugt álag á sér til að kúlurnar rúlli í stað þess að renna.

Hún er undir snúningsborðum, í lóðréttum öxlum, í tjökkum og þar sem þungi eða þrýstingur liggur eftir öxlinum.

Tvöföld kúlulega, lokuð báðum megin

Tvöföld kúlulega og hornsnertilega

Tvær raðir af kúlum sem halla hvor á móti annarri. Hún tekur ásálag í báðar áttir og þolir vel að velta, sem er ástæðan fyrir því að hjólalegur í bílum eru byggðar svona.

Stakar hornsnertilegur, 7-röðin, taka ásálag í aðra áttina og eru settar í pör. Snertihornið ræður hversu mikið ásálag þær taka.

Samanburður

GerðGeislaálagÁsálagÞolir skekkjuHraðiDæmi
Djúpspora kúlulegaJáNokkurtNeiMjög hár6204, 6305
Innleggslega rúnuð utanJáNokkurtJáMeðalUC205, UB204
Sjálfstillandi kúlulegaJáNokkurtJáHár1204, 2207
VeltikeflalegaJáJáJáMeðal22209, 21310
Keflalega kónískJáJáNeiMeðal30205, 32005
RúllulegaJáNeiNeiMjög hárNU312
HornsnertilegaJáJáNeiHár7205BW
ÞrýstilegaNeiJáNeiLágur51205
Hvað hver gerð tekur við. „Nokkurt” ásálag þýðir að legan ræður við það meðfram geislaálaginu en ekki sem aðalálag.

„Kónísk” þýðir tvennt ólíkt eftir því hvar það stendur. Í keflalegu kónískri eru keflin sjálf keilulaga. Í veltikúlulegu kónískri, til dæmis 2206K, er það gatið sem er keilulaga og legan fer á fleyg eða spennuhólk. Þetta eru óskyldir hlutir sem bera sama orð í titlinum.

Álagið og burðarþolið

Álag á legu kemur úr tveimur áttum og nánast alltaf báðum í einhverju hlutfalli.

Geislaálag

Álag þvert á öxulinn. Þyngd, reimspenna, keðjuátak og hliðarkraftur frá tannhjóli eru allt geislaálag.

Allar gerðir nema þrýstilegur eru fyrst og fremst gerðar fyrir það.

Ásálag

Álag eftir öxlinum. Þungi lóðrétts öxuls, átak frá skáhallandi tannhjóli og þrýstingur frá dælu eða viftu.

Hér skilur á milli gerða. Þrýstilega tekur ekkert annað, rúllulega tekur ekkert af því, og keflalega kónísk tekur hvort tveggja saman.

Skekkja

Öxull sem svignar, grind sem gefur eftir eða tvö legusæti sem standa ekki í línu skekkja innri hringinn miðað við þann ytri.

Djúpspora kúlulega þolir nánast enga skekkju. Sjálfstillandi gerðir og innleggslegur eru hannaðar fyrir hana.

C, C0 og endingarreikningurinn

Í vörulistum framleiðenda standa tvær tölur við hverja legu. C er burðarþol á hreyfingu, gefið í kN, og það er talan sem endingarreikningurinn notar. C0 er burðarþol í kyrrstöðu og segir hvað legan þolir án þess að kúlurnar þrýsti varanlegum förum í brautina.

Grunnending legu er reiknuð sem L10 = (C/P)p milljón snúningar, þar sem P er raunálagið á legunni og p er 3 fyrir kúlulegur og 10/3 fyrir keflalegur. Vísisveldið er ástæðan fyrir því að lítil lækkun á álagi lengir endinguna miklu meira en fólk býst við: helmingi minna álag á kúlulegu er áttfalt lengri ending.

Við gefum ekki upp C og C0 á vörusíðunum okkar. Þær tölur eru ekki í okkar gögnum og að giska á þær væri verra en að sleppa þeim. Þurfirðu að reikna endingu, flettu þá númerinu upp í vörulista framleiðandans, eða hringdu í 530 5900 og segðu okkur hvað á að bera.

Leguhús og innleggslegur

Leguhús er leiðin til að setja legu á öxul sem hefur hvorki öxlun, lásrauf né vélarhús utan um sig. Innleggslegan er rúnnuð að utan og situr í kúlulaga sæti í húsinu, svo hún stillir sig sjálf, og hún er fest á öxulinn með tveimur stilliskrúfum í gegnum breiða innri hringinn.

Standleguhús af P-gerð með innleggslegu

Standhús

Algengasta gerðin. Boltast á flöt undir eða yfir öxlinum. UCP205 er heil eining með 25 mm gati, og hún er sama hlutur og UC205 sett í P205.

Flansleguhús með tveimur boltagötum

Flansahús

Boltast á vegg eða þil sem stendur þvert á öxulinn. Til með tveimur boltagötum í sporöskjulöguðum flans og með ferköntuðum fjögurra gata flans.

Klofið leguhús af SNH-gerð

Klofið hús

Efri hlutinn er skrúfaður af og legan tekin upp úr án þess að hreyfa öxulinn. Fyrir stærri öxla og þar sem niðurtími kostar mikið.

Hvítt plastleguhús fyrir blautt umhverfi

Plast- og blikkhús

Plasthús þola þvott, salt og bleytu og eru oftast pöruð við ryðfría legu. Blikkhús eru létt og ódýr lausn þar sem álagið er lítið.

ForskeytiGerðHvað einkennir hana
UCPStandhús með leguHeil eining, legan fylgir. Festist á flöt undir öxlinum
PStandhús án leguHúsið eitt og sér. Veldu UC-leguna við
FFlansahúsFestist á vegg eða þil þvert á öxulinn
SNH, SNLKlofið húsOpnast í tvennt. Skipt er um legu án þess að taka öxulinn út
LPBBlikkhúsPressað stálhús. Létt og ódýrt, fyrir létt álag
PNPPlasthúsFyrir bleytu, þvott og matvælaumhverfi. Oft með ryðfrírri legu
Forskeytin í vörunúmerunum okkar.

Hvernig þú parar legu og hús

  1. Byrjaðu á öxlinum. Talan aftast í númerinu gefur gatið eftir sömu reglu og áður: UC205 er 25 mm, UC207 er 35 mm. Tommugötin bera aukatölu, UC205-16S er 1″.
  2. Veldu húsgerðina eftir því hvar þú getur fest. Flötur undir öxlinum kallar á standhús, þil þvert á hann kallar á flansahús.
  3. Athugaðu efnið. Steypujárn er sjálfgefið. Bleyta, þvottur eða matvæli kalla á plast eða ryðfrítt.
  4. Herðu stilliskrúfurnar á flatan hluta öxulsins ef hann er til staðar, og herðu báðar jafnt. Skrúfa sem bítur á hring veldur því að legan gengur til.

Lok, þéttingar og smurning

Opin kúlulega án loka

Opin

Engin lok. Hún er smurð úr húsinu og húsið verður að þétta fyrir hana. Hana má þvo og pakka upp á nýtt, sem er kostur í búnaði sem er tekinn reglulega í gegn.

Kúlulega með járnlokum

Járnlok, ZZ

Málmskífa sem snertir ekki innri hringinn. Hún heldur grófum óhreinindum úti og feitinni inni, bætir engum núningi við og takmarkar ekki hraðann. Hún stöðvar ekki vatn.

Kúlulega með gúmmílokum

Gúmmílok, 2RS eða DD

Gúmmívör sem liggur við innri hringinn. Besta vörnin gegn vatni, ryki og salti. Núningurinn er meiri og hámarkshraðinn lægri, og hún er fyllt feiti til frambúðar.

Smurningin

  • Lokaðar legur eru smurðar til frambúðar. Þær eru fylltar réttu magni af feiti í framleiðslu og það er hvorki hægt né ætlast til að bæta á þær. Þvoðu þær aldrei upp úr leysiefni, því feitin skolast burt og kemst ekki aftur inn.
  • Opnar legur í húsi eru endursmurðar um smurkoppinn. Smurbilið kemur frá framleiðanda tækisins og styttist í hita, bleytu, ryki og við stöðugan titring.
  • Fylltu húsið að hluta, ekki að fullu. Venjan er 30 til 50 % af frírýminu í húsinu. Of mikil feiti hitar leguna af því að veltiefnin þurfa að ryðja henni frá sér í sífellu, og ofsmurning er algeng orsök þess að lega hitnar skömmu eftir viðhald.
  • Blandaðu ekki ósamhæfðum feitum. Ólík þykkingarefni brjóta hvort annað niður og blandan annaðhvort rennur út eða harðnar.

Nánar um feitina sjálfa, NLGI-flokkinn og þykkingarefnin er á smurfeitisíðunni okkar.

Pakkdósin ver leguna. Þéttingin á öxlinum við hliðina á legunni er það sem heldur vatni og óhreinindum frá henni í flestum tækjum. Þegar lega er tekin upp borgar sig nánast alltaf að skipta um pakkdósina í leiðinni.

Ísetning: það sem drepur nýja legu

Lega sem er rétt valin getur samt bilað á fyrstu vikunni, og þá er ástæðan nánast alltaf eitt af fernu: óhreinindi, rangt átak, röng mátun eða högg.

  1. Hreinlæti fyrst. Taktu leguna ekki úr umbúðunum fyrr en sætið er hreint og þú ert tilbúin/n. Rykkorn í brautinni verður að punktskemmd undir fyrsta álagi.
  2. Mældu öxulinn og sætið. Slitinn öxull heldur ekki legunni og hún byrjar að snúast á honum. Þá eyðist öxullinn hratt og legan er ekki orsökin.
  3. Pressaðu á þann hring sem þú ert að máta. Fer legan á öxulinn, pressaðu á innri hringinn. Fer hún í húsið, pressaðu á þann ytri. Aldrei í gegnum kúlurnar, því þá færðu varanleg för í brautina sem heyrast um leið og hún fer af stað.
  4. Eða hitaðu hana. Lega sem á að fara þétt á öxul fer auðveldlega á hann eftir upphitun í 80 til 110 °C, og 120 °C eru algeng efri mörk. Notaðu ofn eða spanhitara, aldrei opinn loga, og aldrei á lokaða legu með gúmmílokum.
  5. Hvorugur hringurinn má snúast í sæti sínu. Sá hringur sem snýst miðað við álagsstefnuna fær þéttu mátunina, hinn má vera lausari svo hann geti hreyfst þegar öxullinn lengist. Á venjulegum öxli sem snýst þýðir það þétt á öxulinn og rennimátun í húsið. Nákvæmu vikmörkin standa í vörulista framleiðandans.
  6. Snúðu henni í höndunum áður en þú ræsir. Hún á að snúast jafnt og hljóðlaust. Hik eða grófleiki þýðir að eitthvað er skakkt, klemmt eða skemmt, og það lagast ekki við notkun.

Verkfærin

Legupressa eða hólkur sem liggur nákvæmlega á þeim hring sem á að pressa. Í neyð dugar mjúkur hólkur og jafnt átak, en aldrei hamar beint á hringinn.

Aftakari með réttum kjafti tekur leguna af án þess að draga í gegnum kúlurnar. Sími 530 5900 ef þig vantar réttu stærðina.

Þegar legan kemur út

Geymdu gömlu leguna þangað til nýja er komin í. Númerið á henni, lokin og legubilið eru bestu heimildirnar um hvað á að fara í staðinn.

Skoðaðu líka hvernig hún leit út að innan. Jöfn mött braut er eðlilegt slit, en rifflur, punktaför, ryð eða brunalitur segja þér af hverju hún bilaði.

Hvað einkennin segja þér

Lega bilar sjaldnast án þess að gera boð á undan sér. Hljóð, hiti og leikur segja til um hvað fór úrskeiðis, og það er þess virði að lesa það af gömlu legunni áður en sú nýja fer í, því annars fer hún sömu leið.

EinkenniLíkleg orsökHvað þú gerir
Jafnt ýlfur eða hvinurOf lítið legubil, of þétt mátun, ofsmurningAthugaðu hvort C3 átti að vera í og hversu mikil feiti er í húsinu
Reglubundið smell eða höggPunktaför í brautinniLegan hefur fengið högg eða verið pressuð í gegnum kúlurnar. Hún lagast ekki
Hiti sem vex jafnt og þéttOfsmurning, klemmd lega, skekkjaStöðvaðu áður en hún tekur sig í sundur. Léttu á feitinni og mældu sætin
Leikur eða slag á öxliSlitin lega eða of laus mátunMældu öxulinn og sætið. Lega sem snýst á öxlinum eyðir honum hratt
Ryð innan á brautunumVatn hefur komist innRöng lok eða ónýt pakkdós. Skiptu um hvort tveggja
Grátt, þurrt eða kögglótt efniFeitin er búin eða of gömulStyttu smurbilið eða veldu feiti sem þolir hitann betur
Fínar rifflur þvert á brautinaRafstraumur hefur farið í gegnum legunaÞekkt í rafmótorum með hraðabreyti. Þarf einangraða legu eða jarðbursta
Algeng einkenni og hvað liggur að baki.

Heimildir fyrir stærðar- og númerakerfinu: ISO 15 um ytri mál legu og uppbyggingu legunúmera, ISO 281 um endingarreikninginn (L10) og ISO 5753 um legubilsflokka. Öll vörudæmi og öll mál í töflunum eru tekin úr okkar eigin vörulista. Yfirfarið 20. október 2026.

Hvernig þú velur rétta legu: sex skref

  1. Lestu númerið af gömlu legunni. Sé það læsilegt ertu búin/n. Númerið geymir málin, gerðina, lokin og legubilið, og þú þarft ekkert annað.
  2. Sé það ólæsilegt, mældu d, D og B. Mældu á legunni sjálfri og rúnnaðu að næsta staðlaða máli. Skrifaðu líka hjá þér hvort hún var opin, með járnlokum eða gúmmílokum.
  3. Áttaðu þig á álaginu. Kemur það þvert á öxulinn, eftir honum, eða hvort tveggja? Það ræður gerðinni og er eina spurningin sem númerið svarar ekki fyrir þig þegar þú ert að hanna frá grunni.
  4. Metið umhverfið. Vatn, þvottur, ryk eða matvæli kalla á gúmmílok og stundum á ryðfría legu eða plasthús. Þurrt og hreint vélarrými kemst af með járnlok.
  5. Athugaðu hitann og mátunina. Hitni legan í vinnu eða sé hún pressuð þétt á báða hringi, þá á C3 við. Stóð C3 á þeirri gömlu, haltu þig við C3.
  6. Skoðaðu hvað annað þarf að fylgja. Pakkdós, splitti, stilliskrúfur eða nýtt hús. Legan ein og sér dugar sjaldnast þegar búnaðurinn er kominn í sundur.

Stoppirðu á einhverju skrefi, hringdu í 530 5900. Það sem við þurfum að vita er númerið eða málin þrjú, hvernig lokin voru og í hvaða tæki hún fer.

Legur í okkar úrvali

Málin standa fremst í titli hverrar vöru, svo þú getur leitað beint að þeim. Sláðu inn 20x47x14 eða 6204 í leitina og þú færð allar útfærslurnar.

Kúlulegur

Stærsti flokkurinn. Djúpspora legur opnar, með járnlokum og með gúmmílokum, innleggslegur rúnaðar utan og ryðfríar útfærslur.

Veltilegur

Sjálfstillandi kúlulegur og veltikeflalegur, fyrir öxla sem mega skekkjast og álag sem er of þungt fyrir eina röð.

Keflalegur og þrýstilegur

Kónískar keflalegur fyrir geislaálag og ásálag saman, og þrýstilegur fyrir hreint ásálag.

Leguhús

Standhús, flansahús, klofin hús, blikkhús og plasthús, með legu eða stök.

Hjólalegur í bíla

Hjólalegur og hjólnöf eru sérkafli. Þær eru oftast tvöfaldar legur eða heilar einingar og eru valdar eftir bíl, ekki eftir máli.

Algengar spurningar

Hvað þýðir 6204?

Fyrsti stafurinn, 6, segir að þetta sé djúpspora kúlulega. Annar stafurinn, 2, segir hversu stór legan er utan um gatið, og tveir síðustu stafirnir eru innra málið: 04 sinnum 5 eru 20 mm.

6204 er því djúpspora kúlulega með 20 mm gat, og hún mælist 20 × 47 × 14 mm.

Hvað þýðir 2RS aftan við legunúmerið?

Að legan sé með gúmmílok báðum megin. Vörin á lokinu liggur við innri hringinn og heldur vatni, ryki og salti frá brautinni. Sama hlut má sjá merktan DD, DDU, LLU eða VV eftir framleiðanda.

ZZ er annað: þá eru lokin úr málmi og snerta ekki innri hringinn. Þau halda grófum óhreinindum úti, bæta engum núningi við og takmarka ekki hraðann, en þau stöðva ekki vatn.

Legur með 2RS eru fylltar feiti til frambúðar. Ekki þvo þær upp úr leysiefni.

Hvað þýðir C3?

Að legan sé með aukið legubil, það er að segja meiri leik á milli kúlnanna og brautanna áður en hún fer í. Venjulegt bil heitir CN og er ekki skrifað í númerið.

Bilið minnkar þegar legan er komin í vinnu, því þétt mátun þenur innri hringinn út og hiti þenur hann meira en þann ytri. Þar sem búist er við því að bilið minnki mikið er byrjað með meira bil.

C3-lega finnst lausari í hendi og það er rétt eins og það á að vera. Stóð C3 á gömlu legunni, settu C3 í aftur.

Hvernig mæli ég legu sem er ónýt og ólæsileg?

Mældu þrennt með skurðmáli: gatið á innri hringnum, ytra málið á ytri hringnum og breiddina yfir ytri hringinn. Mældu á legunni sjálfri en ekki á öxlinum eða húsinu, því hvort tveggja getur verið slitið.

Rúnnaðu að næsta staðlaða máli. Legumál eru stöðluð, svo 46,9 mm að utan er 47 mm lega.

Taktu líka eftir því hvort hún var opin, með járnlokum eða gúmmílokum, og hvort eitthvað annað stóð aftan á númerinu. Komdu með málin eða hringdu í 530 5900.

Hver er munurinn á 6204 og 6304?

Gatið er það sama, 20 mm, en 6304 er stærri að utan og breiðari: 20 × 52 × 15 á móti 20 × 47 × 14. Annar tölustafurinn í númerinu er það sem segir þetta.

Stærri röð þýðir meiri málm utan um sama gat og þar með meira burðarþol, en hún þarf líka stærra sæti í húsinu. Þær eru ekki skiptanlegar nema húsið taki við hvoru tveggja.

Hvað þýðir skástrikið í 60/32?

Að gatið gangi ekki upp í fimm. Venjulega eru tveir síðustu stafirnir margfaldaðir með fimm, en 32 deilist ekki með fimm, svo málið er skrifað beint á eftir skástriki.

60/32 er því lega úr 60-röðinni með 32 mm gat. Við eigum líka 62/28, 63/22, 63/28 og 63/32 eftir sömu reglu.

Hvaða lega þolir það að öxullinn sé ekki alveg beinn?

Sjálfstillandi gerðirnar. Í sjálfstillandi kúlulegu og veltikeflalegu er brautin í ytri hringnum kúlulaga, svo innri hringurinn má halla án þess að legan klemmist. Innleggslegur í leguhúsi gera það sama með því að vera rúnaðar að utan.

Djúpspora kúlulega þolir nánast enga skekkju. Setjirðu hana þar sem öxullinn svignar eða legusætin standa ekki í línu, bilar hún löngu fyrir tímann.

Má ég setja C3-legu þar sem venjuleg lega var?

Ekki nema eitthvað kalli á það. C3 á heima þar sem legan hitnar í vinnu, þar sem báðir hringir eru pressaðir þétt, eða þar sem framleiðandinn tilgreinir það. Rafmótorar eru algengasta dæmið.

Sé ekkert slíkt í spilinu og handbókin segir venjulegt bil, settu þá venjulegt bil í. Of mikið bil í kaldri legu veldur titringi og óþarfa hljóði.

Hvernig set ég legu á öxul án þess að skemma hana?

Pressaðu alltaf á þann hring sem þú ert að máta. Fer legan á öxulinn, á átakið að fara á innri hringinn eingöngu. Fer hún í húsið, á það að fara á þann ytri.

Átak sem fer í gegnum kúlurnar skilur eftir varanleg för í brautinni. Legan gengur kannski inn án þess að nokkuð sjáist, en hún gefur frá sér reglubundið smell um leið og hún fer af stað og endist stutt.

Á þéttri mátun er einfaldast að hita leguna í 80 til 110 °C og renna henni á. Notaðu ofn eða spanhitara en aldrei opinn loga, og hitaðu aldrei legu með gúmmílokum.

Af hverju hitnaði legan eftir að ég smurði hana?

Líklegast af því að það fór of mikil feiti í hana. Veltiefnin þurfa þá að ryðja feitinni frá sér í sífellu og það hitar leguna meira en of lítil smurning gerir.

Venjan er að fylla 30 til 50 % af frírýminu í leguhúsinu, ekki að fylla það. Hitni legan eftir smurningu, léttu á og láttu hana ganga sig inn.

Hvað er innleggslega og hvenær nota ég hana?

Innleggslega er kúlulega sem er rúnuð að utan og með breiðari innri hring. Hún situr í kúlulaga sæti í leguhúsi, stillir sig sjálf, og er fest á öxulinn með stilliskrúfum eða stút í stað þess að öxullinn þurfi öxlun og lásrauf.

Hún á heima alls staðar þar sem búnaður er settur saman úr öxli og festingum fremur en vélarhúsi: færiböndum, blásurum, búvélum og hrærum. UC205 í P205-hús heitir UCP205 sem heil eining.

Hvað þýðir kónísk í titlinum?

Það fer eftir því hvaða gerð stendur á undan. Í keflalegu kónískri eru keflin sjálf keilulaga og legan tekur geislaálag og ásálag saman.

Í veltikúlulegu kónískri, til dæmis 2206K, er það gatið sem er keilulaga, 1:12. Sú lega fer á fleyg eða spennuhólk fremur en beint á öxulinn. Þetta eru óskyldir hlutir sem bera sama orð.

Gefið þið upp burðarþol, C og C0?

Nei. Þær tölur eru ekki í okkar vörugögnum og við viljum ekki giska á þær. Þú finnur þær í vörulista framleiðandans með því að fletta upp númerinu, og þær eru eins fyrir sama staðlaða númer milli framleiðenda að því marki sem útfærslan er sú sama.

Ertu að velja legu frá grunni fremur en að skipta um, hringdu í 530 5900 og segðu okkur hvað á að bera, hversu hratt það snýst og hvernig álagið liggur.

Þarf ég að skipta um pakkdós í leiðinni?

Nánast alltaf, já. Pakkdósin er það sem heldur vatni og óhreinindum frá legunni, og hún hefur legið jafn lengi og legan sem bilaði. Ný lega á bak við þreytta þéttingu endist skemur en hún ætti að gera.

Pakkdósir eru merktar á sama hátt og legur, innra mál sinnum ytra mál sinnum breidd, og við eigum þær í sama flokki.

Ertu með númerið eða málin?

Segðu okkur númerið af gömlu legunni, eða málin þrjú og hvernig lokin voru, og við finnum réttu leguna með þér.

Sími 530 5900