Bílavarahlutir · alternatorar
Alternator: nýir og endurnýjaðir
Alternatorinn, eða rafallinn, framleiðir rafmagnið meðan vélin gengur. Við eigum alternatora frá Bosch, bæði nýja og endurnýjaða úr eXchange-línunni, í 12 V og 24 V kerfi, allt frá fólksbílum upp í vörubíla og vinnuvélar. Gamla alternatorinn tökum við upp í.

Hvað gerir alternatorinn?
Rafgeymirinn kemur bílnum í gang. Eftir það tekur alternatorinn við og sér öllu rafkerfinu fyrir straumi, hleður geyminn aftur og heldur spennunni stöðugri hvort sem þú ert með miðstöðina í botni eða ekkert nema ljósin.
Reimin snýr trissunni og þar með snúðinum inni í alternatornum. Segulsvið snúðsins framkallar riðstraum í statorvafningunni, díóðubrúin breytir honum í jafnstraum og spennustillirinn heldur útgangsspennunni réttri eftir því hvað bíllinn er að draga. Bili einn af þessum hlutum hættir hleðslan, og þá er rafgeymirinn einn eftir með alla vinnuna.
Svona pantar þú réttan alternator
- Byrjaðu á bílnúmeri, VIN eða vörunúmeri í Bílavarahlutaleitinni efst á síðunni.
- Berðu saman spennu og amperatölu við gamla alternatorinn.
- Skoðaðu trissuna: gerð, fjölda rifja og hvort hún er með frísveif.
- Hafðu OE-númerið eða VIN við höndina ef fleiri en ein útgáfa kemur upp.
14 V, 28 V og amperatalan
Alternator er alltaf merktur hærri spennu en kerfið sem hann vinnur í. Hann þarf að skila meiru en rafgeymirinn til að geta hlaðið hann, og þess vegna stendur 14 V á einingu í 12 V bíl. Þetta er það fyrsta sem ruglar fólk í vöruheitunum okkar.
| Kerfið í ökutækinu | Alternatorinn | Hvar það á við |
|---|---|---|
| 12 V kerfi | Alternatorinn er merktur 14 V | Fólksbílar, sendibílar og flest minni tæki. |
| 24 V kerfi | Alternatorinn er merktur 28 V | Vörubílar, rútur, vinnuvélar og stærri tæki. |
| Amperatalan | Hámarksstraumur sem hann getur skilað | Hún þarf að duga rafbúnaðinum, en hærri tala er ekki sjálfkrafa rétt. |
Nýr eða endurnýjaður alternator?
Báðar leiðirnar eru í boði hjá okkur og hvorug er neyðarlausn. Munurinn liggur í því hvaðan einingin kemur og hvað hún kostar.
Nýr alternator
Framleiddur frá grunni og hefur aldrei verið í ökutæki. Þetta er oftast leiðin þegar ökutækið er nýlegt eða þegar engin endurbyggð eining er til í þá útfærslu.
Endurnýjaður (Bosch eXchange)
Notuð eining sem Bosch hefur tekið í sundur, hreinsað og byggt upp aftur í verksmiðju. Slithlutirnir fara út, allt hitt er mælt á móti forskrift og einingin er prófuð áður en hún fer í kassann.
Bosch gefur sjálft upp að eXchange-hlutir geti verið allt að 30 % ódýrari en sambærilegir nýir hlutir úr þeirra eigin nýhlutalínu og að sömu ábyrgðarskilmálar gildi um hvort tveggja. Verðið hjá okkur sérðu á hverri vörusíðu fyrir sig, og um ábyrgð gagnvart þér gildir það sem stendur á ábyrgðarsíðunni okkar.
Myndbönd
Svona fer endurbyggingin fram
Bosch safnar notuðum alternatorum og startörum af markaði og byggir þá upp aftur í vottuðum verksmiðjum. Myndböndin hér fyrir neðan eru frá Bosch sjálfum og sýna ferlið og framleiðsluna.
Hverju er skipt út í endurbyggðum alternator?
Endurbygging í verksmiðju er annað en viðgerð á verkstæði. Í viðgerð er lagfærður sá hluti sem bilaði. Í raðendurframleiðslu er öll einingin tekin í sundur, hver hluti prófaður og slithlutirnir endurnýjaðir hvort sem þeir voru farnir eða ekki.
| Hluti | Hvað er gert |
|---|---|
| Snúður | Sleitihringirnir eru renndir upp. Fari þeir undir lágmarksmál eru þeir endurnýjaðir. Prófað er fyrir jarðtengingu. |
| Statorvafning | Prófuð fyrir afköstum, vafningsgöllum og jarðtengingu. Reynist hún gölluð er hún alltaf endurnýjuð. |
| Díóðubrú | Hver díóða er prófuð í báðar áttir. Séu þær gallaðar eru þær, eða öll brúin, endurnýjaðar. |
| Spennustillir | Virkniprófaður. Eldri gerðir eru settar yfir í nýrri þar sem því verður við komið, og kolaburstar endurnýjaðir þegar þeir eru komnir undir lágmarkslengd. |
| Legur | Kúlu- og rúllulegur eru alltaf endurnýjaðar. |
| Sleitihringsendalok | Legusætið er prófað. Plaststýringar, skvettufóðringar og gúmmíhlutir eru alltaf endurnýjuð. |
| Drifendalok | Legusæti rúllulegunnar er prófað. |
| Trissa | Poly-V trissan er sjónskoðuð. Trissur úr plötustáli eða plasti eru alltaf endurnýjaðar. |
| Hlífðarhetta | Á samþjöppuðum alternatorum: skoðuð og alltaf endurnýjuð ef hún er skemmd. |
Verksmiðjurnar eru vottaðar samkvæmt IATF 16949 og vinna eftir sömu kröfum og gilda um frumbúnað. Áður en vara fer yfirhöfuð inn í eXchange-línuna þarf hún að standast samþykktarferli þar sem ending, titringsþol, umhverfisþol og þéttleiki eru prófuð, og hver einasta endurbyggð eining er prófuð að lokum. Aðeins þær sem standast allar prófanir fara úr verksmiðjunni.
Er það örugglega alternatorinn?
Hleðsluvandamál koma nær alltaf fram sem rafgeymavandamál, svo það er auðvelt að skipta um rangan hlut. Mæling á hleðsluspennunni tekur stutta stund og sker úr.
Merki sem benda á hleðsluna
- Rafgeymaljósið logar á mælaborðinu meðan ekið er.
- Ljósin dofna eða flökta, sérstaklega í hægagangi.
- Nýr rafgeymir tæmist aftur og aftur.
- Ýlfur eða suð sem fylgir snúningshraða vélarinnar.
- Lykt af heitri reim eða sviðnu rafmagni.
Athugaðu þetta fyrst
- Reimina og strekkjarann: slök eða glansandi reim hleður illa.
- Hleðsluspennuna við vélina í gangi.
- Skaut, kapla og jarðsamband.
- Rafgeyminn sjálfan undir álagi.
Hvað þarf að liggja fyrir áður en pantað er?
Alternator er ekki víxlanlegur milli útfærslna þó ökutækið heiti það sama. Sama bílgerð getur verið með ólíka vél, ólíkan aukabúnað og þar með ólíka einingu.
| Atriði | Hvað það segir | Hvar þú finnur það |
|---|---|---|
| Spenna | 14 V eða 28 V eftir því hvort kerfið er 12 V eða 24 V. | Vörunafnið og tæknilýsingin á vörusíðunni. |
| Straumur | Amperatalan, til dæmis 150 A. | Vörunafnið og merkiplatan á gamla hlutnum. |
| Trissa | Gerð og fjöldi rifja á poly-V trissunni, og hvort hún er með frísveif. | Gamla trissan. Teldu rifin og berðu saman við reimina. |
| Snúningsstefna | Hægri eða vinstri, merkt (R) eða (L). | Tæknilýsingin á vörusíðunni. |
| Festing og armur | Festingargötin, strekkjaraarmurinn og hvernig hann situr við vélina. | Gamli alternatorinn og mynd af honum á sínum stað. |
| Tengiklemmur | Oftast B+ fyrir útganginn og D+ eða L fyrir hleðsluljósið, stundum W. | Gamli hluturinn og raflögnin að honum. |
| OE-númer og VIN | Númerið sem framleiðandi ökutækisins notar. | Skráningarskírteinið, merkiplatan og bílnúmeraleitin. |
Við tökum gamla alternatorinn upp í
Gamli alternatorinn er ekki rusl. Hann er hráefnið í næstu endurbyggðu einingu, og þess vegna tökum við hann upp í þegar þú kaupir nýjan hjá okkur. Varahlutadeildin fer yfir það með þér hvernig uppítakan er í þínu tilviki.
Varahlutadeildin: 530 5900
Algengar spurningar um alternatora
Hvað gerir alternatorinn eiginlega?
Hann framleiðir rafmagnið meðan vélin gengur. Rafgeymirinn kemur bílnum í gang, en eftir það er það alternatorinn sem heldur rafkerfinu gangandi og hleður geyminn aftur.
Þess vegna getur nýr rafgeymir tæmst aftur og aftur ef alternatorinn er bilaður.
Af hverju stendur 14 V á alternator í 12 V bíl?
Af því að hann þarf að skila hærri spennu en geymirinn til að geta hlaðið hann. Alternator í 12 V kerfi er merktur 14 V og alternator í 24 V kerfi 28 V. Þetta eru ekki sitt hvor kerfin, heldur sama kerfið séð frá sitt hvorum endanum.
Hver er munurinn á nýjum og endurnýjuðum alternator?
Nýr alternator er framleiddur frá grunni. Endurnýjaður alternator er notuð eining sem hefur verið tekin í sundur, hreinsuð og byggð upp aftur í verksmiðju, þar sem slithlutirnir fara út og allt hitt er mælt og prófað.
Bosch kallar þessa línu eXchange og segir sömu ábyrgðarskilmála gilda um hana og um nýju hlutina sína.
Hvað gerið þið við gamla alternatorinn?
Við tökum hann upp í. Hann fer í endurbyggingarferlið í stað þess að enda sem brotajárn. Varahlutadeildin fer yfir það með þér hvernig uppítakan er í þínu tilviki.
Hleðsluljósið logar. Er alternatorinn ónýtur?
Ekki endilega, en það er rétta merkið til að taka alvarlega. Ljósið getur líka kviknað út af slakri eða brotinni reim, lélegu jarðsambandi eða biluðum spennustilli.
Láttu mæla hleðsluspennuna áður en þú pantar. Það tekur stutta stund og sker úr um hvort vandinn er í alternatornum eða annars staðar.
Get ég sett öflugri alternator í bílinn?
Stundum, en hann verður samt að passa við festinguna, trissuna, reimina og raflögnina. Hærri amperatala kallar líka á sverari kapla ef á að nýta hana. Spurðu okkur áður en þú pantar eitthvað annað en upprunalegu útfærsluna.
Fylgir trissa með alternatornum?
Það fer eftir vörunni. Trissur eru til í mörgum útfærslum, með og án frísveifar, svo berðu alltaf saman við gömlu trissuna og reimina áður en þú pantar.
Hvernig finn ég réttan alternator í vefversluninni?
Notaðu Bílavarahlutaleitina efst á síðunni. Hún tekur við bílnúmeri, og undir „Ítarleg leit” líka við verksmiðjunúmeri (VIN) og vörunúmeri. Bílnúmerið er fljótlegast, VIN-númerið öruggast þegar sama bílgerð kom með fleiri en einni útfærslu.
Komi fleiri en ein útgáfa upp skaltu bera saman spennu, amperatölu og trissu við gamla hlutinn, eða hafa samband við okkur.
Eruð þið með alternatora í vörubíla og vinnuvélar?
Já. Flokkurinn nær yfir bæði 14 V einingar fyrir fólksbíla og 28 V einingar fyrir stærri tæki, þar á meðal útfærslur fyrir þekktar vörubílagerðir.
Finnum réttan alternator saman
Byrjaðu á bílnúmerinu eða skoðaðu flokkinn. Ef fleiri en ein útgáfa kemur upp, eða ef þú ert ekki viss hvort hleðsluvandinn liggi í alternatornum, hafðu þá samband áður en þú pantar.
Varahlutadeildin: 530 5900











