Rafstöð Ducar bensín 3Kw 212Cc
Ducar DG4650 er 212Cc bensínknúin 230V rafstöð með 2.800 W málafli og 3.000 W hámarksafli. Hún hentar vel til að knýja verkfæri, lýsingu og annan almennan rafbúnað á vinnusvæðum, í sumarbústöðum eða sem varaafl þar sem rafmagn er ekki aðgengilegt.
Rafstöðin er búin AVR spennustýringu, tveimur 230V innstungum og 15 lítra eldsneytistanki. Sterk grind og handfang auðvelda flutning og uppsetningu.
ATHUGIÐ: Rafstöðin er afhent án smurolíu og þarf að fylla á hana með 10W-30 eða 15W-40 smurolíu áður en vélin er gangsett.
Vörulýsing
Ducar DG4650 rafstöð, bensín 3Kw
Ducar DG4650 er knúin 212Cc bensínvél og ræst með handstarti. Rafstöðin skilar 230 V við 50 Hz og er búin AVR spennustýringu sem hjálpar til við að halda spennu stöðugri þegar álag breytist.
15 lítra eldsneytistankur gefur góðan vinnslutíma. Eldsneytisnotkun er um 0,85 l/klst. án álags og allt að 1,8 l/klst. við fullt álag.
ATHUGIÐ RAFSTÖÐIN KEMUR ÁN SMUROLÍU – HANA ÞARF AÐ KAUPA SÉRSTAKLEGA
-
Smurolía á rafstöðina á að vera 10W-30 eða 15W-40
-
Mikilvægt að láta rafstöðina ganga í 10-15 mínútur án álags fyrir fyrstu notkun.
Helstu eiginleikar
-
Málafl: 2.800 W
-
Hámarksafl: 3.000 W
-
Spenna: 230 V
-
Tíðni: 50 Hz
-
212Cc bensínvél
-
AVR spennustýring
-
Tvær 230V innstungur
-
15 l eldsneytistankur
-
Handstart
Helstu kostir
-
Veitir rafmagn óháð rafveitu
-
Hentar fyrir verkfæri, lýsingu og almennan rafbúnað
-
AVR spennustýring hjálpar til við að halda útspennu stöðugri
-
Stór eldsneytistankur fyrir lengri vinnulotur
-
Tvær innstungur gera kleift að tengja fleiri en eitt tæki
-
Handfang og sterk grind auðvelda flutning og meðhöndlun
Ducar bensínrafstöðvar – Samanburðartafla
Tæknilegar upplýsingar
|
Eiginleiki |
DG4650 |
DG14500E |
|---|---|---|
|
Málafl |
2.800 W |
9.000 W |
|
Hámarksafl |
3.000 W |
9.500 W |
|
Spenna |
230 V |
230 V |
|
Tíðni |
50 Hz |
50 Hz |
|
Slagrými vélar |
212 cm³ |
550 cm³ |
|
Smurolíumagn vélar |
0,6 l |
1,2 l |
|
Kveikjukerfi |
T.C.I. |
T.C.I. |
|
Gangsetning |
Handstart |
Handstart |
|
Spennustýring |
AVR |
AVR |
|
Fasar |
Einfasa |
Einfasa |
|
Efni í rótorvindingum |
Ál |
Kopar |
|
Efni í statorvindingum |
Ál |
Kopar |
|
16 A, 250 V, 2P+E tenglar |
2 stk. |
2 stk. |
|
CEE 32 A, 250 V, 2P+E tengill |
Ekki til staðar |
1 stk. |
|
ON/OFF rofi |
1 stk. |
1 stk. |
|
3 í 1 mælir |
1 stk. |
1 stk. |
|
Jarðtengi |
1 stk. |
1 stk. |
|
Sjálfvari |
1 stk. |
1 stk. |
|
Hitavörn |
Ekki til staðar |
2 stk. |
|
Viðvörunarljós fyrir smurolíu |
Ekki til staðar |
Ekki til staðar |
|
Efni eldsneytistanks |
Málmur |
Málmur |
|
Eldsneytistankur |
15 l |
40 l |
|
Þvermál grindarröra |
25 mm |
32 mm |
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi |
|---|
Vörur sem gætu líka hentað …


Valvoline MaxLife 15W-40 er hágæða smurolía sem byggir á synþetsískum efnum og er sérstaklega samsett og hugsuð til…
Meira fráDucarSkoða allt →

Ducar DGPW44T er öflug bensínknúin háþrýstidæla fyrir krefjandi þrif þar sem rafmagn er ekki aðgengilegt. Hún skilar allt…

Ducar DG14500E er öflug bensínknúin rafstöð með 9.000 W málafli og 9.500 W hámarksafli. Hún er ætluð fyrir…

Ducar DGPW3400H er öflug bensínknúin háþrýstidæla með 234 bar vinnuþrýstingi, allt að 254 bar leyfilegum hámarksþrýstingi og 590…

