Colad Hand Cleaner Extreme er handhreinsir sem var sérstaklega þróaður fyrir verkstæði sem eru í bílasprautun og réttingum en að sjálfsögðu hentar hann fyrir margskonar iðnað. Inniheldur 100% náttúruleg efni og valhnetukjarna sem skrúbbkorn, inniheldur engin leysiefni. Fjarlægir meðal annars málningarleifar, 2ja þátta límrestar og önnur óhreinindi.
Leiðbeiningar: Setjið smá handhreinsi í lófann og nuddið vel á milli fingra og skolið með vatni og þurrkið hendurnar.











