Bosch C30 Battery Charger 6/12V – Bosch C30 er mjög hraðvirkt og öflugt hleðslutæki og vaktari, hentar fyrir bæði 6V og 12V blý-sýrugeyma, EFB, GEL, AGM, EFB (Start/Stop) rafgeyma.
- Bosch C30 hleðslutækið er einfalt í notkun, einn hnappur stjórnar aðgerðum. LED ljós lætur þig vita hver staðan er á tækinu, hvort það er að hlaða eða hvort rafgeymir er fullhlaðinn.
- Tækið er eins þétt og fyrirferðarlítið og hægt er, það kemur í handhægri tösku sem geymir allt sem tengist tækinu. Passar vel undir sæti eða í hliðarhólf í farangursrými margra bíla.
- Öflugar rafgeymaklemmur sitja vel og örugglega á rafgeyminum. Aukalega þá kemur snúra með auga-tengjum sem henta á marga eldri bíla og mótorhjól sem og þar sem erfitt er að koma klemmum á pólana.
- Öryggi skiptir öllu máli. Bosch C30 tækið hættir að hlaða ef það koma upp vandamál svo sem ofhitnum, útsláttur og þess háttar. Tækið er rakavarið IP65 (ryk og skvetthelt). Tækið kemur líka í veg fyrir neistamyndun þegar verið er að setja klemmurnar á rafgeyminn eða taka þær af.
Bosch C30 hleðslutæki og vaktari
Fjölhæft hrað-hleðslutæki fyrir 6V og 12V rafgeyma