Bílrúðuskipti og framrúðuviðgerðir
Hjá Poulsen starfa sérhæfðir fagmenn í bílrúðuskiptum sem og bílrúðuviðgerðum. Hjá okkur færð þú fagleg og vönduð vinnubrögð. Við byggjum á áratuga langri reynslu í bílrúðuskiptum og bílrúðuviðgerðum. Poulsen er með einn stærsta lager af bílrúðum á landinu. Ef þú ert í vafa með bílrúðuna hjá þér er velkomið að líta við hjá okkur annaðhvort í Skeifunni 2 eða að Hyrjarhöfða 9 til að fá upplýsingar hvað er best að gera. Poulsen er í í samstarfi við öll helstu tryggingafélög landsins.
Bílrúðuviðgerðir eru langvarandi lausn á litlum sprungum (stjörnu í framrúðunni), þær er hægt að laga fljótt og oftast sést lítið og jafnvel ekkert eftir slíkar viðgerðir. Tryggingafélög standa straum af kostnaði við slíkar framrúðuviðgerðir og því þarf viðskiptavinur ekki að greiða neitt þegar um slíkar viðgerðir er að ræða. ATH! Það margborgar sig að koma fljótt eftir að slík sprunga myndast því það geta orðið meiri skemmdir út frá slíkum sprungum.
Við tökum á móti bílum í bílrúðuskipti frá kl.08:00 til 09:00 þann dag og hann er er bókaður í viðgerð, bíllinn er svo tilbúinn samdægurs. Hægt er að koma með bílinn kvöldið fyrir bókaðan tíma og skilja lyklana eftir í lyklalúgunni hjá okkur.
Bóka tíma