9332+ er einnota rykgríma frá 3M sem kemur með Cool Flow útöndunarventli sem að léttir fyrir öndun og minnkar hitamyndun í grímunni einnig minnkar ventillinn móðumyndun upp á gleraugu / öryggisgleraugu af völdum útöndunar. 3M 9332+ rykgríman leggst vel að andlitinu og þægilegt er að móta nefstykkið
3M 9332+ rykgríman hentar m.a. í:
- Lyfjaiðnaði.
- Við framleiðslu á duftkenndum efnum.
- Þar sem verið er að hreinsa myglu úr rýmum.
- Úðun á sæfiefnum (skordýraeitri o.þ.h.)
Upplýsingar og staðlar:
- FFP3 NR D – EN 149:2001+A1:2009
- Ítarlegri upplýsingar má sjá í tækniskjali.