Interflon White Grease er fjölnota matvælavottuð smurfeiti / samsetningarfeiti sem er sérstaklega hentug fyrir ýmis tæki í matvælaiðnaði s.s. hrærivélar, blandara, pökkunarvélar og margt fleira. Myndar mjög endingargóða smurfilmu með mikla viðloðun sem hrindir frá raka og veitir vörn gegn tæringu.
Interflon White Grease er hágæða fjölnota smurfeiti sem byggir á MicPol® tækni, sérstaklega þróuð fyrir smurningu í matvæla, drykkjar og lyfjaiðnaði. Smurfeitin veitir framúrskarandi vörn gegn sliti og oxun, lengir endingartíma búnaðar og tryggir jafna og örugga virkni í umhverfi þar sem tíð snerting við vatn, gufu og óhreinindi er algeng.
Varan er ætluð til almennrar smurningar á vélahlutum með hægan til meðalhraða og létt til þungt álag. Hún hentar meðal annars fyrir legur, ása, keðjur, rennifleti og opin tannhjól í matvælavinnsluvélum, sem og í öðrum iðnaði þar sem forðast þarf smurefnissnertingu með öllu, til dæmis í textíliðnaði. Interflon White Grease er NSF H1 skráð og samþykkt fyrir notkun þar sem óbein snerting við matvæli getur átt sér stað.
Helstu kostir
- Alhliða smurfeiti fyrir fjölbreytta notkun
- MicPol® tækni sem tryggir langvarandi smurningu
- Framúrskarandi vörn gegn tæringu og sliti
- Mjög góð vatns og gufuvörn
- PFAS laus vara
- Dregur úr viðhaldi, smurefnanotkun og orkukostnaði
Notkunarleiðbeiningar
- Til að sem bestur árangur náist við smurningu, fjarlægið gamla smurfeiti og hreinsið alla fleti vandlega með Interflon Metal Clean F eða Interflon Fin Clean All, áður en Interflon White Grease er borið á þá.




