Bosch C7 er í senn bæði hleðslutæki sem og vaktari sem að hentar fyrir allar gerðir rafgeyma.
Kostir C7 hleðslutækisins frá Bosch
- Hleðslutæki fyrir bæði 12V og 24V.
- C7 er með 6 mismunandi stillingar.
- Mjög öflugur vaktari á rafgeyma auk þess að vera hleðslutæki.
- Tækið er með Endurhleðslu stillingu sem vekur upp rafgeyma sem hafa fallið alveg í rýmd og afli. Þessi stilling dugar þó ekki til ef að rafgeymirinn hefur skemmst.
- Hægt að hlaða inn á rafgeymi í bíl en um leið tengja varafl inn á bílinn svo að tölvubúnaður bílsins missi ekki út allar skipanir á meðan geymirinn er aftengdur.
- C7 hleðslutækið má einnig nota til þess að halda kæliboxum í gangi (12V stærri en 14AH).
- Hentar jafnt fyrir gamlar bifreiðar og nýjar, mótorhjól, fjórhjól, vörubíla, rútur, vinnuvélar, dráttarvélar, báta og hjólhýsi.